Fjárlaganefnd fundar með Indefence á morgun Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. júlí 2009 14:35 Guðbjartur Hannesson segir Trichet skýrsluna ekki hafa verið rædda á fundi fjárlaganefndar.
Fjárlaganefnd Alþingis ætlar að funda á morgun með Indefence hópnum og fleiri aðilum sem hafa verið gagnrýnir á Icesave samninginn. „Við ætlum að leggja okkur eftir því að fá inn ólík sjónarmið í umræðuna og fá þau inn strax," segir Guðbjartur Hannesson, formaður fjárlaganefndar, í samtali við fréttastofu. Fjárlaganefnd fundaði með samninganefnd Íslendinga í málinu í morgun og segir Guðbjartur að þar hafi gefist tími til að spyrja samningamenn út í það hvernig staðið hefði verið að gerðum samningum og fengið skýringar og mat á samningnum. Þá hafi verið rætt við slitastjórn og skilanefnd Landsbankans og rætt um mat þeirra á eignasafninu og hvernig þeir héldu utan um það. Þá verði rætt við fulltrúa frá Tryggingasjóði innlána í dag. Guðbjartur segir að viðtal við Davíð Oddsson, fyrrverandi seðlabankastjóra, sem birtist í Morgunblaðinu á sunnudag hafi ekki komið formlega til tals á fundinum. Trichet skýrslan, þar sem segir að innistæðutryggingakerfið eigi ekki við þegar kerfishrun verði, hafi ekki komið inn á borð fjárlaganefndar og ekki hafi verið kallað eftir því. Hins vegar sé mikil vinna eftir í málinu. Fjárlaganefnd eigi eftir að ræða við ráðuneytin. Þá séu þrjár nefndir sem skipti á milli sín umfjöllun um málið, en það eru auk fjárlaganefndar, efnahags- og skattanefnd, og utanríkismálanefnd.
Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Láta bandarískan gísl lausan Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Innlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Innlent Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Innlent Vilja leggja réttarríkið til hliðar Erlent Fleiri fréttir Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Tók málin í eigin hendur og opnar dagforeldravef Skjálfti upp á 3,1 við Herðubreið Sérstakur saksóknari gerði samning við PPP Sjá meira