Pétur með sýningu 5. janúar 2009 04:30 leiklist Pétur Jóhann verður einn á sviði í febrúar í Borgarleikhúsi.
Skemmtikrafturinn Pétur Jóhann Sigfússon er nú við æfingar á nýjum einleik sem hann hefur sett saman í félagi við Sigurjón Kjartansson og er frumsýning fyrirhuguð þann 7. febrúar næstkomandi á Litla sviði Borgarleikhússins. Verkið kalla þeir félagar Sannleikann og er miðasala hafin á sýninguna. Þetta er í fyrsta sinn sem stjarnan úr Nætur- og Dagvaktinni leikur á sviði og því er eftirvæntingin mikil, en hann á að baki langan feril sem uppistandari og skemmtikraftur. Í „Sannleikanum“ fást svör við spurningum eins og: Er dagurinn styttri hjá hundum? Af hverju eru fjögur hólf fyrir þvottaefni? Láta peningar jörðina snúast? Hvernig fara þeir að því? Og á ég eftir að endurholdgast sem skítafluga? Það er valinn maður í hverju rúmi í uppsetningu Sannleikans. Stefán Jónsson, leikari, hefur á undanförnum árum haslað sér völl sem leikstjóri í fremstu röð og var valinn leikstjóri ársins við fyrstu afhendingu Grímuverðlaunanna árið 2003. Hann hefur meðal annars leikstýrt verkunum: Kvetch, Sporvagninn Girnd, Héri Hérason, Túskildingsóperan, Forðist okkur, Belgíska Kongó, Leg, Óhapp! og Baðstofan. Leikmynd gerir Snorri Freyr Hilmarsson en tónlist er eftir Halldór Ágúst Björnsson. Það er fyrirtækið 3sagas sem stendur að sýningunni. - pbb
Mest lesið Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Lífið Frægir fjölguðu sér árið 2025 Lífið Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Lífið Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Lífið Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Lífið Taldi sig hólpna því síminn hringdi aldrei Lífið Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Lífið Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Lífið Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Lífið Gítarleikari The Cure er látinn Lífið Fleiri fréttir Sjálfur jólasveinninn skotspónn samsæriskenninga Þakkar Trump í ólettutilkynningunni Íslenskur mágur Rex Heuermann efins um ódæði hans Vinsælustu myndböndin á Vísi á árinu Frægir fjölguðu sér árið 2025 Gítarleikari The Cure er látinn Skilaði týndum heyrnartólum alla leið til Hamborgar Sjáðu nýja stiklu úr stjörnuprýddri hasarmynd Balta Ásgeir Kolbeins furðu lostinn yfir steini í jólapakkanum Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein Sat uppi með sex kíló af kæstri skötu Kristmundur Axel tók við af Bubba Seinfeld og Friends-leikari látinn Jólagjafir íslenskra vinnustaða Deildar meiningar um lyktina: „Þetta er byrjendaskata“ Fréttamenn gæða sér á skötu í gegnum árin Laufey á landinu Þar sem vinsælustu lög landsins verða til Þessi smurðu mest á reikning Jommunnar Einhverfir kaþólikkar um allan heim heita Þorlákur Cooper bað móðurina um hönd Hadid „Mér finnst gaman að láta sjokkera mig“ Brúðkaup ársins 2025 Heitt í hamsi hjá gestum á „helvíti á jörðu“ í Breiðholti Chris Rea hefur ekið heim um jólin í síðasta skipti Saga jarðaði alla við borðið Vísa ásökunum Skinner um kosningasvindl á bug Kimmel ávarpar bresku þjóðina: Frábært ár fyrir fasisma „Ég hugsa til þín á hverjum einasta degi“ Stjörnulífið: Óskar tíkunum gleðilegra jóla Sjá meira
Viðtöl ársins 2025: Missir, afsögn ráðherra, umsáturseinelti og læknir sem þóttist vera með krabbamein