Lífið

Augu Dana beinast að Íslandi

Fimmtán manna hópur í kringum hljómsveitina D-A-D kom til Íslands í gær. Sveitin heldur styrktartónleika á Nasa í kvöld.
Fimmtán manna hópur í kringum hljómsveitina D-A-D kom til Íslands í gær. Sveitin heldur styrktartónleika á Nasa í kvöld. Fréttablaðið/ANton

Danska rokksveitin D-A-D mætti til landsins í gærdag og heldur styrktartónleika fyrir Íslendinga í vanda á Nasa í kvöld. Danskir fjölmiðlar sýna heimsókninni áhuga.

Danskir fjölmiðlar sýna Íslandsheimsókn rokkaranna í D-A-D, Disneyland After Dark, mikla athygli. Að sögn tónleikahaldarans Gríms Atlasonar munu útsendarar TV2 og Danmarks Radio fylgjast bæði með tónleikunum sem og mótmælum Íslendinga. „Þeir gista á Hótel Borg, alveg ofan í mótmælunum, og fá stanslausan ryþma beint í æð allan sólarhringinn. Þetta eru líka skemmtilegir og hressir menn, alvöru menn,“ segir Grímur um bandið.

D-A-D heldur tónleika á Nasa í kvöld, en eins og Fréttablaðið hefur greint frá eru tónleikarnir styrktartónleikar fyrir íslenska námsmenn og lífeyrisþega í Danmörku sem lent hafa í vandræðum vegna bankahrunsins. D-A-D er ein þekktasta rokksveit Dana og hefur til að mynda oftast allra sveita spilað á stóra sviðinu á Hróarskelduhátíðinni. Hljómsveitin á góðan hóp aðdáenda hér á landi sem muna vel þegar lagið Sleeping My Day Away gerði allt vitlaust á öldum ljósvakans og bandinu var í kjölfarið spáð heimsfrægð.

Það eru samtökin Because We Care sem standa að heimsókn D-A-D til Íslands og þiggja meðlimir hennar enga þóknun fyrir tónleikahaldið. Þegar hafa Because We Care safnað átta milljónum króna til handa bágstöddum Íslendingum í Danmörku. Miðaverð á tónleikana er 2.900 krónur og húsið opnar klukkan 20.30. B.Sig hitar upp.hdm@frettabladid.is






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.