Ragnheiður Clausen: Varð fyrir rafrænu einelti á Facebook 24. júní 2009 20:41 Ragnheiður Elín Clausen, fyrrum þula, segist hafa orðið fyrir rafrænu einelti. „
Þetta er mjög dularfullt. Það sem ég hef velt fyrir mér fyrst og fremst er að einhver skuli nenna að gera mér þann grikk að ýta á þennan takka," segir Ragnheiður Clausen sem er forviða eftir að reikningi hennar á samskiptasíðunni Facebook var lokaður. Það gerðist fyrir um mánuði síðan en sjálf hefur Ragnheiður ítrekað óskað eftir skýringum hversvegna honum var lokað. Svörin hafa þó ekki staðið á sér, en þau eru illskiljanleg. „Mér voru gefnar aðvaranir um ég væri að brjóta reglur Facebook þó ekki hafi verið útskýrt hvað ég á að hafa gert," segir Ragnheiður en frændi hennar Ólafur Arnarson, hagfræðingur og rithöfundur, tók upp hanskann fyrir hana á bloggi sínu í dag. Þar kom fram að stuðningssíða handa Ragnheiði hefði verið stofnuð og þegar hafa yfir 400 manns skráð sig á hana. Eftir að Ragnheiði var úthýst af Facebook ákvað hún að snúa á síðuna og skráði sig aftur inn, nú með nýtt póstfang. Svo virðist sem njósnarar síðunnar hafi verið með á nótunum því aftur var reikningi hennar lokað. „Ég var bara að óska fólki til hamingju með afmælið og þá fæ ég tilkynningar um að reikningnum verði eytt út ef ég hætti þessu ekki," útskýrir Ragnheiður spurð hvað mögulega hafi geta orðið til þess að henni hafi verið úthýst. Hún segist þó gruna að einhverjir óprúttnir aðilar hafi ýtt á nokkurskonar tilkynningartakka á síðu hennar. Og það oftar en einu sinni. Ragnheiður er búin að senda þrjá pósta til forsvarsmanna síðunnar. Alltaf fær hún stöðluð svör til baka sem virðast í engu samhengi við spurninguna. Oftast er henni bent á að fara yfir reglur Facebook. Þar segir að reikningum sé lokað særi fólk blygðunarsemi annarra, aðhafist eitthvað ólöglegt, dreifi klámi eða sé fyrirtæki og auglýsi sig þar með. „Það eina sem ég gerði á síðunni var að tuða um ástandið, setja inn myndir af hundinum mínum og velta því fyrir mér hvort ég verði gift á morgun eða ekki," segir Rangheiður um daglegar venjur sínar á síðunni. Ragnheiður bendir á að vandamálið sé þó ekki eingöngu hennar; svo virðist sem allir geti verið í hættu. „Allir eru með þennan takka á síðunni sinni og hver sem er getur ýtt á hann," segir Ragnheiður. Hún segir skaðann talsverðan enda gríðarlegt magn af myndum og upplýsingum horfnar. Þá eru allir vinir horfnir af síðunni, þar á meðal áhugamenn um hunda erlendis frá sem Ragnheiður var búinn að vingast við. „Þetta er bara rafrænt einelti," segir Ragnheiður. Hún lætur þó ekki deigan síga. Nú er hún kominn með þriðja póstfangið og nýjan reikning. Þar hefur hún fengið að vera í friði, í bili að minnsta kosti.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða ESB ýmist í Meistaradeildinni eða um miðja aðra deild Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Sjá meira