Drottningin stendur undir nafni 12. janúar 2009 03:00 Þriðja táknið er nú „val mánaðarins“ í Waterstone´s sem er stærsta bókakeðja Englands. „
Þriðja táknið eftir Yrsu Sigurðardóttur kom út í gær í kilju í Bretlandi. Stærsta bókabúðakeðjan þar í landi, Waterstone’s, gerir henni sérstaklega hátt undir höfði; hún er sumsé Waterstone’s Crime Booksellers’ Choice í janúar,“ segir útgefandinn Pétur Már Ólafsson. Þó jólabókavertíðin sé að baki hefur Pétur í nægu að snúast, einkum í kringum drottningu íslensku glæpasögunnar, Yrsu, sem er að gera góða hluti í Bretlandi. Auk þess sem Waterstone"s hampar Yrsu teflir bókabúðakeðjan WH Smiths Travel henni fram. „Ég er ekki viss um að bók eftir íslenskan höfund hafi fengið viðlíka start á breskum bókamarkaði fyrir utan verk Arnaldar Indriðasonar en menn hafa einmitt mjög fjallað um það í dómum að nú eigi Ísland tvo framúrskarandi glæpasagnahöfunda, Yrsu og Arnald. Önnur glæpasaga Yrsu, Sér grefur gröf, kemur síðan út innbundin í Bretlandi og Bandaríkjunum á útmánuðum,“ segir Pétur og er með á hraðbergi góða dóma sem Yrsu hafa fallið í skaut: News of the World birti á dögunum stutta umsögn um bókina og gefur fjórar stjörnur. Að sönnu ekki virtasta blað Bretlandseyja – en það útbreiddasta, svo ekki spillir það fyrir. Áður, þegar Þriðja táknið kom út innbundin í fyrra í Englandi, ritaði gagnrýnandi The Times að breskir lesendur yrðu nú að gefa tveimur góðum íslenskum glæpasagnahöfundum gaum. „Daily Telegraph sagði að Þriðja táknið væri létt og leikandi, bókin fékk fjórar stjörnur bæði í Sunday Express og í tímaritinu SHE, fimm stækkunargler af fimm mögulegum í vefmiðlinum Crime Squad, Sunday Telgraph sagði að bókin væri „fullkomin frumraun“, gagnrýnandi Guardian skrifaði að bókin væri „fyndin og áhugaverð“ og að mati tímaritsins Woman and Home er Þriðja táknið „æsispennandi frumraun“, segir Pétur og fer ekki í grafgötur með að Yrsa standi undir nafni sem glæpasagnadrottning Íslands.- jbg
Mest lesið Ástir og átök milli Laufeyjar og Hudsons Williams Tónlist Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York Lífið „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Lífið Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Lífið Gat ekki haldið aftur af blótsyrðum við sigurinn Tónlist Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Lífið Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Lífið Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Lífið Laufey Lín sló í gegn á Coachella Tónlist Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Lífið Fleiri fréttir Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Fyrsti transmaðurinn sem fer með aðalhlutverk í íslenskri kvikmynd Þriðja dóttir Sverris Bergmanns og Kristínar Evu komin í heiminn Óborganlegt faðmlag Jóhanns og Sigurðar „Litlu hlutirnir gefa lífinu merkingu“ Mesta áskorunin að greinast með hryggskekkju Sigurður Sævar og Guðbjörg í sundur Britney farin í meðferð Reynir og Sólveig giftu sig í rauðu Á götunni ellefu ára og segir kerfið hafa gefist upp þegar hún var þrettán Söngvari Massive Attack handtekinn á mótmælum Stjörnulífið: Helen og Ruben ástfangin á Ítalíu Fortíðarþrá einkenndi endurkomuna á stóra sviðið Eilíf glötun bíður ekki endilega bóka í ruslagámum „Að fá þessa greiningu er ekki endapunktur“ Neyðarlegast að handleggsbrjóta vinkonu á sviði Krakkatía vikunnar: Skoffín, geitur og jarðarber Allir og amma þeirra í bókaklúbb Brúðkaupsdagurinn skilaði rúmum þremur milljónum Tónlist sem tekur á skömm og ótta með nokkrum blótsyrðum Steig fram eftir að sex ára dóttir hennar varð fyrir rasisma Mildari og þolinmóðari við sjálfa sig eftir greininguna Fréttatía vikunnar: Bó, vatn og vopnahlé Sjá meira