Kynferðisafbrotamaður: „Ertu til í kallinn?“ 24. júní 2009 11:46 Maðurinn var dæmdur í þriggja mánaða fangelsi.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær 23 ára karlmann í sex mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot. Maðurinn var sakfelldur fyrir að hafa káfað á stúlku utanklæða og sleikt háls hennar þar sem hún lá sofandi inni í herbergi sínu en maðurinn var gestur í samkvæmi þar. Atvikið átti sér stað þann 5. september á síðasta ári. Stúlkan hafði verið að halda upp á afmæli sitt en farið þaðan í miðbæ Reykjavíkur ásamt vinum og kærasta. Eftir það héldu nokkrir aðilar heim til stúlkunnar í eftirpartí. Stúlkan varð töluvert ölvuð og ákvað því að fara að sofa á neðri hæð hússins. Um klukkustund síðar vaknaði hún upp við það að verið var að káfa á henni utanklæða og kyssa á henni hálsinn. Hélt hún fyrst að þar væri á ferð kærasti hennar en aðfarirnar voru þó ekki þær sem hún kannaðist við. Þess vegna opnaði hún augun og sá þá ókunnugan dreng sem hún þekkti ekki. Drengurinn var á nærbuxunum einum fata. Stúlkan fékk mikið áfall þegar hún sá hvernig í pottinn var búið og stormaði út úr herberginu í miklu uppnámi upp á efri hæð hússins þar sem kærasti hennar var ásamt gestum. Maðurinn gekk á eftir stúlkunni upp stigann en þegar stúlkan sagði kærasta sínum hvað gerst hafði henti hann manninum út. Maðurinn sagðist aldrei ætla að vinna stúlkunni mein. Hann viðurkenndi að hafa klætt sig úr öllum fötum nema nærbuxunum og stokkið upp í rúm. Þar hafi hann tekið utan um stúlkuna og spurt: „Ertu til í kallinn?". Það hafi hinsvegar ekki verið gert í kynferðislegum tilgangi heldur hafi einungis verið um grín að ræða. Þá neitaði hann að hafa káfað eða kysst stúlkuna. Framburður stúlkunnar þótti trúverðugur á meðan framburður drengsins breyttist frá því í skýrslutöku hjá lögreglu þar til hann kom fyrir dómi. Þótti hæfileg refsing sex mánaða fangelsi en fresta skal fullnustu refsingar þriggja mánaða haldi maðurinn skilorð í tvö ár.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Sjá meira