Starfsmennirnir kvarta ekki 8. júlí 2009 02:45 Yfir 100 starfsmenn starfa hjá Alþingi og ekki er ljóst hvenær þingi verður frestað.fréttablaðið/stefán
Starfsmenn Alþingis hafa ekki getað fengið sumarleyfi jafnauðveldlega og áður vegna sumarþingsins. „Einhverjir voru vissulega búnir að skipuleggja sín frí og þurfa að breyta því en við reynum að leysa það,“ segir Karl M. Kristjánsson, rekstrarstjóri Alþingis. Karl vonast til að hægt sé að fá starfsmenn til að taka sem allra minnst frí nú um hásumarið. Venjulega hafi Alþingi getað boðið fólki að taka frí um hásumar en það sé öðruvísi núna. Hann segir fólk hins vegar ekki kvarta. Starfsmenn geri sér ljóst að óvenjuleg staða sé uppi. Auðveldara er til dæmis fyrir starfsmenn í bókhalds- og fjármáladeild að taka sér sumarleyfi á meðan starfsfólk á nefndarsviði á erfiðara með að fá sumarleyfi, að sögn Karls. Alþingi ræður sér ekki sumarafleysingafólk til að taka við störfum á meðan starfsmenn taka sér sumarleyfi. Starfsmenn séu hins vegar duglegir að færa til verkefni, að sögn Karls. Yfir 100 manns vinna hjá Alþingi. Ekki er ljóst hvenær þingi verður frestað en haustþing hefst 1. september. „Þegar starfsfólk hefur lokið verkefnum eftir að þingi lýkur, þá reynum við að koma fólki í sín lögbundnu og nauðsynlegu frí áður en það byrjar að undirbúa þinghaldið aftur,“ segir Karl.
Mest lesið Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Erlent Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Innlent Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Kirkja í Amsterdam alelda Erlent Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Innlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Innlent Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Erlent Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Innlent Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Innlent Fleiri fréttir Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Grunaður um stórfellda líkamsárás og frelsissviptingu „Við bara svolítið sitjum uppi með þetta“ Sjá meira