Kvótabrask í skjóli umdeilanlegra laga 1. júlí 2009 05:00 Ólína Þorvarðardóttir
Kvótabrask útgerðarmanna vegna stórvægilegra galla á fiskveiðistjórnunarkerfinu veldur vannýtingu á tilteknum nytjastofnum og milljarðatapi þjóðarbúsins. Byggðirnar í landinu líða fyrir hráefnisskort og eftirlitsaðilar hafa brugðist hlutverki sínu. Þetta er meðal niðurstaðna þeirra Finnboga Vikar og Þórðar Más Jónssonar, laganema við Háskólann á Bifröst, sem unnið hafa skýrslu um vissa þætti fiskveiðistjórnunar-kerfisins. Í skýrslunni taka þeir Finnbogi og Þórður dæmi sem virðast sýna það svart á hvítu hvernig útgerðarmenn nýta verðlitlar tegundir til að geta leigt út aðrar verðmætari með tilheyrandi ávinningi. Úthafsrækja hafi til dæmis í flestum tilfellum verið leigð til að auka framsalsheimildir, eins og skýrsluhöfundar benda á að komi fram í skýrslu stjórnar LÍÚ 2007/2008. Er tegundum eins og rækju safnað með færslum á einstök skip til að leigja dýrari tegundir sem skipinu er úthlutað. Þannig er til dæmis mögulegt að leigja þorsk eða ýsu vel umfram það hlutfall sem leyfilegt var í upphafi fiskveiðiársins samkvæmt lögum. Þeir sem hafa áhuga á því að veiða úthafsrækjuna hafa enga möguleika til þess, þar sem veiðiheimildirnar eru bundnar hjá þeim sem kjósa að nýta þær ekki. Þjóðarbúið verður þannig af gríðarlegum verðmætum, að mati Finnboga og Þórðar. Fiskistofa er harðlega gagnrýnd fyrir að leyfa ýmsar færslur á kvóta á milli skipa, og tekið er sem dæmi að slíkar færslur séu leyfðar þó að sýnt sé að viðkomandi skip hafi hvorki getu né tíma til að stunda veiðarnar. Fiskistofa hefur vísað gagnrýninni frá sér og vísar á löggjafann um svör við því hvort einstök atriði í framkvæmd laganna séu réttlætanleg. Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingar og varaformaður sjávarútvegs- og landbúnaðarnefndar, segir að allar þær upplýsingar sem hún hafi fengið við skriflegri fyrirspurn um aflaheimildir og tilfærslur á þeim staðfesti að verið sé að nota kvótakerfið á skjön við lögin. „Það er verið að nota þetta sem leiguliðakerfi með því að nýta glufur í lögunum. Í þessu er lokun kerfisins fólgin og óréttlæti þess að hluta til." Ólína beinir þeirri spurningu til ráðherra hvernig ráðuneyti hans ætli að bregðast við þeim upplýsingum sem nú séu komnar fram, sem hún segir marktækar og alvarlegar. Ekki náðist í Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra við vinnslu fréttarinnar.
Mest lesið Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Innlent Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Innlent Þorgerður beygði af í Bítinu Innlent Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Innlent Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Innlent Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Innlent Íslandsbanki hækkar vexti Innlent Segir Katrínu sparka í konuna sína Innlent Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Innlent Hnífjafnt í síðustu könnuninni Innlent Fleiri fréttir Óttast aukið álag eftir fjöldauppsagnir hjá Reykjavíkurborg Íslandsbanki hækkar vexti Sökuðu rektor um meiðyrði og stjórnarskrárbrot og hótuðu skaðabótamáli Hnífjafnt í síðustu könnuninni Umræðan hafi verið ruglingsleg og á lágu plani Skálmöld brá í óleyfi fyrir í „vandræðalegu þjóðrembumyndbandi“ Símtöl almennt málefnaleg en dónaskapur inni á milli Aldrei komið í þvílíkt fjölmenni þar sem er svona mikil þögn Jákvæð „sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel Forystukonum ríkisstjórnarinnar brugðið vegna alvarlegra hótana Líflátshótanir, þandar taugar og bein útsending frá norsku konungshöllinni Voru á Íslandi þegar maðurinn var drepinn Missti öxi sem hann hafði inni á sér og var handtekinn Uppsagnirnar hafi komið eins og reiðarslag Telur að barátta Ólafs muni koma í bakið á honum Brynjar tekur við af Líf Jón Hrói nýr sveitarstjóri í Langanesbyggð Efast um að skylt verði að hefja aðildarviðræður þótt já verði ofan á Armslengd eigi sérstaklega vel við um Fjölmiðlanefnd Inga segir já Örfáir töldu Ingu hafa staðið sig best Tuttugu prósent búin að greiða atkvæði „Mér fannst ég þekkja hann strax og ég hitti hann í fyrsta sinn“ Bíða enn niðurstöðu varðandi vatnslögnina Brotist inn í Hygge á Barónsstíg Vélstjóra sem átti að sigla Bandero meinuð innganga Tuttugu prósent þegar greitt atkvæði og andlát Noregskonungs „Verkinu er haldið í gíslingu“ Reyndi að smygla fíkniefnum í vínflöskum Nafn mannsins sem lést í Stuðlagili Sjá meira