Innlent

Fá humar frá Vinnslustöðinni

Ragnhildur G. Guðmundsdóttir, stjórnarformaður Mæðrastyrksnefndar,  Anna Kristjánsdóttir, ritari Mæðrastyrksnefndar, og Anna Auðunsdóttir, varaformaður Fjölskylduhjálparinnar, veittu gjöfunum viðtöku úr hendi Sigurgeirs Brynjars Kristgeirssonar, framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar, og Ásbjörns Gíslasonar, forstjóra Samskipa (þetta er röð þeirra frá vinstri á myndinni).

Vinnslustöðin í Vestmannareyjum afhenti í dag Fjölskylduhjálp Íslands og Mæðrastyrksnefnd Reykjavíkur að gjöf samtals 900 kíló af humri til dreifingar meðal skjólstæðinga samtakanna fyrir jólin. Humarinn er frosinn í 450 gramma pokum. Hvor samtök fengu 1.000 poka til ráðstöfunar.

Landflutningar-Samskip tóku að sér að flytja humarinn til Reykjavíkur án endurgjalds, geyma hann hjá Samskipum og flytja á dreifingarstaði Fjölskylduhjálparinnar og Mæðrastyrksnefndar þegar á að afhenda vöruna.

„Humrinum fylgja kveðjur frá Eyjum með ósk um gleðileg jól, farsæld og frið á nýju ári. Sigurgeir Brynjar segir að margir starfsmenn Vinnslustöðvarinnar hafi kynnst atvinnuleysi og erfiðleikum þegar fyrirtækið átti í miklum rekstrarvanda með tilheyrandi uppsögnum fyrir rúmlega einum áratug. Þeir geti því auðveldlega sett sig í spor fólks sem þurfi að þola tekjufall, atvinnumissi og tilheyrandi erfiðleika vegna efnahagshrunsins," segir í tilkynningu.

Vinnslustöðin hafi síðan unnið sig út úr erfiðleikunum og standi nú á styrkum stoðum. Þess njóti bæði starfsmennirnir og sjálft Eyjasamfélagið. „Aðalatriðið er samt það að Vinnslustöðin vill heiðra Fjölskylduhjálpina og Mæðrastyrksnefnd fyrir einstaka starfsemi og fórnfýsi gagnvart fólk sem þarfnast stuðnings á erfiðum tímum. Við vonumst til að skjólstæðingar þessara góðu samtaka taki við humrinum stoltir og njóti hans vel um jólin."

Fleiri fréttir

Sjá meira

×