Samgöngumiðstöð enn í mestri óvissu 14. desember 2009 03:15 Fyrir mánaðamót ræddu samgönguráðherra og formaður skipulagsráðs um að reisa 1.500 fermetra flugstöð í Vatsnmýrinni. Nú er aftur horfið til áforma um samgöngumiðstöð.Mynd/loftmyndir
Ekki hefur enn verið gengið frá því hvaða fyrirtæki eiga að nota fyrirhugaða samgöngumiðstöð í Vatnsmýri. Á næstunni verður rætt við flugfélög, veitingamenn og þá sem reka hópferðabíla um þetta. Þangað til er ekki hægt að segja til um hvað miðstöðin verður stór. Eitt af viðfangsefnum samgönguyfirvalda er svo að finna út úr því hvernig miðstöðin geti borgað sig á tuttugu til þrjátíu árum, eins og væntanlegir lánveitendur verkefnisins reikna með, ef flugrekstri verður úthýst úr Vatnsmýri 2016, eins og Reykjavíkurborg gerir ráð fyrir. Nú hefur verið horfið frá hugmyndum, sem rætt var um í seinni hluta nóvember, um að endurbyggja gömlu flugstöðina. Samgönguráðherra sagði á Alþingi á mánudag að lán til framkvæmda frá lífeyrissjóðunum yrði til allt að 35 ára. Það yrði greitt með leigutekjum og innritunargjöldum farþega, tvö hundruð til 250 krónum á mann. Samkvæmt aðalskipulagi Reykjavíkur á önnur stóra flugbrautin að hverfa árið 2016, en ein verður eftir. Hjá Flugstoðum er gengið út frá því að ekki sé hægt að reka flugvöll í Vatnsmýri með einni braut. Ólafur Sveinsson, stjórnarformaður Flugstoða og verkefnisstjóri samgöngumiðstöðvar, getur ekki svarað því að svo stöddu hvernig þetta viðskiptamódel, til allt að 35 ára stenst, fyrst hætta á með flugrekstur í Vatnsmýri 2016. Hann vonast til að fá niðurstöðu í málið innan fárra daga. Þá sé það ekki hans að segja til um framtíð Umferðarmiðstöðvar, BSÍ, spurður hvort til standi að starfsemin þar færist í fyrirhugaða miðstöð. „Við eigum eftir að fara í gegnum allt þetta með þeim rekstraraðilum sem myndu vera í samgöngumiðstöð,“ segir Ólafur. Heyrst hafa hugmyndir um flug- og samgöngumiðstöðvar í Vatnsmýri frá 1.500 fermetrum og allt upp í tíu þúsund fermetra. Júlíus Vífill Ingvarsson, formaður skipulagsráðs, getur heldur engu svarað um stærð miðstöðvarinnar, enda hafi samgönguráðuneytið ekki skilað formlegum tillögum um það. Hún verði þó „verulega minni“ en áður var áætlað. Spurður hvort ráð sé gert fyrir því að umferðarmiðstöðin víki, segir Júlíus Vífill að boltinn sé hjá ráðuneytinu: „Það er ráðuneytisins að semja við þá aðila sem þurfa að vera með í samgöngumiðstöðinni.“ klemens@frettabladid.is
Mest lesið Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fleiri fréttir „Skemmtilegra ef við hefðum lent á hinu árinu“ Sakar framkvæmdastjóra Landspítala um ósannindi Yfirgefa húsið fyrir fullt og allt á fimmtudag „Við verðum að fá fólk heim aftur“ „Komið þá með allt það sem gerðist síðast“ Fyrstu íslensku GPS-heiðlóurnar komnar heim Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegu tímabili að ljúka Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Sjá meira