Ríkislögreglustjóri kallar saman baráttuhóp gegn Vítisenglum Lóa Aldísardóttir skrifar 30. ágúst 2009 18:38
Ríkislögreglustjóri ætlar að kalla saman baráttuhóp lögreglunnar gegn Hells Angels strax eftir helgi. Mótorhjólaklúbburinn Fáfnir var lagður niður í síðustu viku og lét Jón Lúther Traustason, dæmdur ofbeldismaður, af formennsku. Þá tók við Einar Boom Marteinsson sem er kenndur við barinn Boom Kicker sem hann rak í Hafnarstræti. Fáfnir hefur lengi stefnt að inngöngu í Vítisengla og haft stöðu svokallaðra áhangenda. Fréttastofa náði sambandi við nýja formanninn í dag - og staðfesti hann að klúbburinn hefði nú gengið inn í Vítisengla og fengið stöðu prospect klúbbs, eða væntanlegra félaga. Næsta skref er fullgild þátttaka. Einar gat ekki veitt miklar upplýsingar svo við prófuðum að banka upp á í félagsheimili samtakanna. Einar Boom vildi ekki veita viðtal en sagði þó að á stefnuskrá klúbbsins væri það eitt að keyra mótorhjól og hlúa að fjölskyldum félaga. Lögregluyfirvöld hafa efasemdir um þennan tilgang, og hafa barist gegn tilurð Vítisengla á Íslandi. Ríkislögreglustjóri ætlar að kalla baráttuhóp gegn Hells angels til fundar strax eftir helgi. Hann segir hugsanlega leið til að verjast Hells angels sé að alþingi setji lög sem banni starfsemi skipulagðra glæpasamtaka sem sannanlega hafi orðið uppvís að glæpastarfsemi. Ríkislögreglustjóri segir ástæðu til að óttast samtökin og vísar meðal annars til rokkarastríðanna á Norðurlöndum. Þau hafi endað með skelfingu. Menn hafi látið lífið og það sé veruleg fíkniefnasala, mansal og alls kyns glæpastarfsemi sem tengist Hells Angels.
Tengdar fréttir Fylgjast með íslensku Vítisenglunum Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hafa ásamt lögreglunni fylgst með starfsemi Fáfnismanna, eða Hells Angels Prospects, eins og þeir heita nú, eftir að klúbburinn fluttist í Hafnarfjörð í vor. 30. ágúst 2009 20:00 Fáfnir lagðir niður - Hells Angels staðreynd á Íslandi Mótorhjólaklúbburinn Fáfnir hefur verið lagður opinberlega niður samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vísis 28. ágúst 2009 20:45 Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Erlent Fleiri fréttir „Skilningur opnar ekki höfnina“ Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Sjá meira
Fylgjast með íslensku Vítisenglunum Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði hafa ásamt lögreglunni fylgst með starfsemi Fáfnismanna, eða Hells Angels Prospects, eins og þeir heita nú, eftir að klúbburinn fluttist í Hafnarfjörð í vor. 30. ágúst 2009 20:00
Fáfnir lagðir niður - Hells Angels staðreynd á Íslandi Mótorhjólaklúbburinn Fáfnir hefur verið lagður opinberlega niður samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vísis 28. ágúst 2009 20:45