Lamdi barnsmóður sína í augsýn barnanna Hafsteinn Gunnar Hauksson skrifar 6. júlí 2009 10:04 Brotin voru framin í Vestmannaeyjum. Mynd/Óskar
Maður var í dag dæmdur til fjögurra mánaða fangelsisvistar fyrir héraðsdómi Suðurlands, auk 300 þúsund króna skaðabótagreiðslu til barnsmóður sinnar fyrir líkamsárás, hótanir og brot gegn valdstjórninni. Þá þurfti hann að greiða allan sakarkostnað vegna málsins. Dóminn hlaut hann fyrir ýmis brot sem hann framdi í Vestmannaeyjum í september á síðasta ári. Þá ruddist hann í heimildarleysi inn á heimili barnsmóður sinnar og gekk í skrokk á henni í augsýn barna þeirra. Maðurinn ýtti við henni, tók hana kverkataki og hótaði henni lífláti. Hann steig einnig á síma í hennar eigu svo hann brotnaði. Þegar lögreglu bar að garði var maðurinn í annarlegu ástandi og viðhafði ógnandi tilburði við lögreglumennina. Kemur fram í málavöxtum dómsins að hann hafi tekið einn lögregluþjóninn hálstaki og ítrekað hótað honum og félaga hans barsmíðum og lífláti. Maðurinn bar fyrir dómi að hann myndi óskýrt eftir viðskiptum sínum við lögregluna og ef hann hefði verið með hótanir þá hefði það bara verið eitthvert bull í honum. Þá var maðurinn einnig sakfelldur fyrir að hafa í desember sama ár hótað dyraverði lífláti, en maðurinn skuldaði dyraverðinum og bróður hans greiðslur vegna íbúðar sem hann keypti af þeim. Maðurinn á nokkuð langan brotaferil að baki. Hann varði sig sjálfur fyrir dómnum.
Mest lesið Tugir látnir eftir sprengingu í svissneskum skíðabæ Erlent Íslendingar tjá sig um skaupið: „Versta skaup ever“ eða það besta í manna minnum? Lífið Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Innlent Kirkja í Amsterdam alelda Erlent Óttast að um fjörutíu hafi látist á skemmtistaðnum Erlent Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Innlent Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Innlent Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Innlent Kamilla Bretadrottning greinir frá kynferðisofbeldi Erlent Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Innlent Fleiri fréttir Þessi fjórtán hlutu fálkaorðuna á nýársdegi „Líðan barna nú mun móta sögu og styrk Íslands á næstu árum“ Fleirum þykir Flokki fólksins ganga illa að hrinda málum í framkvæmd Fimmtán leituðu á bráðamóttöku vegna flugeldaslysa Fjögurra stiga skjálfti í Bárðarbungu: „Stærsti skjálftinn á árinu“ Hvetur Íslendinga til að hafna „svartagallsrausi“ Ríflega tuttugu útköll vegna eldsvoða Vill annað sætið hjá Samfylkingunni í borginni Kveðst hlakka til að mæta aftur til starfa Á bak við tjöldin: „Með alls konar exit plans, trúið mér“ Fyrsta barn ársins kom í heiminn klukkan 00:24 Miðahafi á Íslandi vann 642 milljónir í Víkingalottói Stunguárás og margar tilkynningar um flugeldaslys Gleðilegt nýtt ár kæru lesendur Vísis Eitthvað í íslensku samfélagi fjandsamlegt börnunum okkar Simmi vinsælasti leynigesturinn „Þetta er Íslandsmet, Íslandsmet í svikum“ Tal um Ingu eftir kosningar ekki til sóma Gummi lögga er maður ársins 2025 Árangur breyti ekki alltaf upplifun fólks „Viðreisn jafnvel erfiðari viðfangs en Flokkur fólksins“ Vara við hættu á sinubruna Haldlögðu metmagn af fíkniefnum á árinu Vanhelgunin ýmist skemmdarverk eða persónuleg árás Árið gert upp í Kryddsíld 2025 Hafþór Freyr maður ársins að mati lesenda Vísis og hlustenda Bylgjunnar Segir myndbandsupptöku af því þegar skórnir voru teknir Tveir með alvarlega áverka eftir hnífstunguárás Vonast til að rafmagn verði komið á seinni partinn Rúmur helmingur bjartsýnn fyrir 2026 Sjá meira