Þvert yfir landið á fjórhjóli 7. júlí 2009 04:30 Hjólið sem Jón Gunnar hyggst ferðast á yfir landið er sérútbúið og hentar til útivistar. Hann er hér við hliðina á hjólinu, sem hann var á í fjögurra daga veiðiferð fyrir skömmu. fréttablaðið/stefán
Jón Gunnar Benjamínsson ætlar að ferðast þvert yfir landið á fjórhjóli á næstunni. Jón Gunnar er lamaður fyrir neðan mitti og vill vekja athygli á því að fatlað fólk í hjólastólum hefur sama áhuga á ferðalögum og útivist og aðrir. Þá vill hann kanna aðgengi fatlaðra á ferðamannastöðum á hálendinu. Einnig verður áheitum safnað í tengslum við leiðangurinn til þess að safna fé til að bæta aðgengi fatlaðra í Landmannalaugum. Jón segir að hugmyndin hafi kviknað þegar hann fékk póst frá 66° Norður þar sem leiðangursstyrkur var auglýstur. „Þá datt mér í hug að það væri kannski býsna góð hugmynd að geta samofið útivistaráhugann og söfnun fyrir góðu málefni. Það gæti blásið einhverjum sem er í svipaðri aðstöðu byr í brjóst, og sýnt að ýmislegt er hægt þótt maður sé í þessari leiðinlegu aðstöðu," segir hann. Jón mun leggja af stað á morgun frá Hverarönd í Mývatnssveit. Hann er nýkominn úr veiðiferð í Laxá þar í sveit þar sem hann fór um allt á hjólinu. Ferðin mun taka fimm daga og henni lýkur í Reykjavík á sunnudag. Með Jóni í för verður Sigfús Hreiðarsson, sem ætlar að aka sexhjóli. Ingólfur Stefánsson mun fylgja þeim á jeppa og Halldór Kolbeins kvikmyndagerðarmaður mun taka leiðangurinn upp. Hægt verður að fylgjast með leiðangrinum á heimasíðunni acrossiceland.is og er söfnunarnúmer hans 901 5001.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Faðir Mary drottningar látinn Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Mette Frederiksen leitar yfir miðju Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Erlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira