Lífið

Ljónheppinn tískuljósmyndari í búsáhaldabyltingunni

Ljósmyndarinn segir skrýtna tilfinningu að koma til vinnu í fyrrakvöld en í stúdíóinu hvílir stór innrömmuð mynd af Ólafi Ragnari sem Ari tók á sínum tíma fyrir TIME.
Ljósmyndarinn segir skrýtna tilfinningu að koma til vinnu í fyrrakvöld en í stúdíóinu hvílir stór innrömmuð mynd af Ólafi Ragnari sem Ari tók á sínum tíma fyrir TIME. mynd/ari magg

„Eins og ég hafi pantað þetta,“ segir Ari Magg, auglýsinga- og tískuljósmyndari, og einhver sá virtasti á sínu sviði.

Mótmælin á Hverfisgötu fyrir framan Þjóðleikhúsið og Þjóðmenningarhúsið að kvöldi miðvikudags voru sérlega mögnuð. Mikill mannfjöldi hafði safnast þar saman og kveikt bál við tröppur leikhússins og hrópaði: „Vanhæf ríkisstjórn!“ Og barði í potta og pönnur. Búsáhaldabyltingin stóð sem hæst.

Í Þjóðleikhúskjallaranum var fundur hjá Reykjavíkurfélagi Samfylkingar. Þegar þau tíðindi spurðust að samþykkt lægi fyrir um að slíta bæri stjórnarsamstarfinu greip fögnuður um sig meðal fólks. Erpur Eyvindarson tónlistarmaður, sem staðið hefur framarlega í flokki mótmælenda, taldi í samtali við blaðamann Fréttablaðsins, sigur hafa unnist. Stjórnin væri tæknilega fallin. Og fór ásamt fjölda annarra á næstu krá til að fagna.

Meðan þessu fór fram var einn fremsti ljósmyndari landsins í óvæntri kjöraðstöðu. Mótmælin fóru fram nánast fyrir framan stóran glugga ljósmyndastúdíós hans. Það stendur í portinu sem er gegnt Þjóðleikhúsinu. Útsýnið var kjörið.

„Þetta var skemmtilegt. Ég hafði einkaútsýni yfir þetta og náði ágætis myndum. Reyndar hefur líka verið hægt að mynda af bílastæðahúsinu. Ég hafði einmitt farið kvöldið áður að Alþingishúsinu. Og var þá að horfa á nokkra staði í kring sem hefði verið gott að geta stillt sér upp á. Svo gerist þetta að næsta kvöld er þetta beint fyrir framan glugga minn.“

Víst er að búsáhaldabyltingin býður upp á frábært myndefni og mótív fyrir ljósmyndara og tökumenn. Margar myndavélar voru á lofti. Gósentíð fyrir ljósmyndara. „Þetta eru spennandi tímar fyrir blaðaljósmyndara og aðra ljósmyndara einnig. Ég veit um nokkra kollega sem hafa fylgst með þessu frá upphafi,“ segir Ari sem góðfúslega veitti Fréttablaðinu sýnishorn af því sem við blasti frá ljósmyndastúdíói hans.

jakob@frettabladid.is

útsýnið Fyrir utan gluggann stóðu mótmælin sem hæst, brenna og flugeldar þannig að helst minnti á gamlárskvöld.mynd/ari magg





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.