Ljónheppinn tískuljósmyndari í búsáhaldabyltingunni 23. janúar 2009 06:00 Ljósmyndarinn segir skrýtna tilfinningu að koma til vinnu í fyrrakvöld en í stúdíóinu hvílir stór innrömmuð mynd af Ólafi Ragnari sem Ari tók á sínum tíma fyrir TIME. mynd/ari magg „
Eins og ég hafi pantað þetta,“ segir Ari Magg, auglýsinga- og tískuljósmyndari, og einhver sá virtasti á sínu sviði. Mótmælin á Hverfisgötu fyrir framan Þjóðleikhúsið og Þjóðmenningarhúsið að kvöldi miðvikudags voru sérlega mögnuð. Mikill mannfjöldi hafði safnast þar saman og kveikt bál við tröppur leikhússins og hrópaði: „Vanhæf ríkisstjórn!“ Og barði í potta og pönnur. Búsáhaldabyltingin stóð sem hæst. Í Þjóðleikhúskjallaranum var fundur hjá Reykjavíkurfélagi Samfylkingar. Þegar þau tíðindi spurðust að samþykkt lægi fyrir um að slíta bæri stjórnarsamstarfinu greip fögnuður um sig meðal fólks. Erpur Eyvindarson tónlistarmaður, sem staðið hefur framarlega í flokki mótmælenda, taldi í samtali við blaðamann Fréttablaðsins, sigur hafa unnist. Stjórnin væri tæknilega fallin. Og fór ásamt fjölda annarra á næstu krá til að fagna. Meðan þessu fór fram var einn fremsti ljósmyndari landsins í óvæntri kjöraðstöðu. Mótmælin fóru fram nánast fyrir framan stóran glugga ljósmyndastúdíós hans. Það stendur í portinu sem er gegnt Þjóðleikhúsinu. Útsýnið var kjörið. „Þetta var skemmtilegt. Ég hafði einkaútsýni yfir þetta og náði ágætis myndum. Reyndar hefur líka verið hægt að mynda af bílastæðahúsinu. Ég hafði einmitt farið kvöldið áður að Alþingishúsinu. Og var þá að horfa á nokkra staði í kring sem hefði verið gott að geta stillt sér upp á. Svo gerist þetta að næsta kvöld er þetta beint fyrir framan glugga minn.“ Víst er að búsáhaldabyltingin býður upp á frábært myndefni og mótív fyrir ljósmyndara og tökumenn. Margar myndavélar voru á lofti. Gósentíð fyrir ljósmyndara. „Þetta eru spennandi tímar fyrir blaðaljósmyndara og aðra ljósmyndara einnig. Ég veit um nokkra kollega sem hafa fylgst með þessu frá upphafi,“ segir Ari sem góðfúslega veitti Fréttablaðinu sýnishorn af því sem við blasti frá ljósmyndastúdíói hans. jakob@frettabladid.is útsýnið Fyrir utan gluggann stóðu mótmælin sem hæst, brenna og flugeldar þannig að helst minnti á gamlárskvöld.mynd/ari magg
Mest lesið „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Lífið Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Lífið „Það tók viku að vinna í Rúriki“ Tónlist Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni Lífið Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Lífið Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Lífið Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Lífið Systur skapa heilsusamfélag fyrir konur á öllum æviskeiðum Lífið samstarf Írar ekki með í Eurovision annað árið í röð Tónlist Próteinskammtur alltaf með í töskunni Lífið samstarf Fleiri fréttir Barnastjarnan orðin tveggja barna móðir Hvað veistu um... fræga menn sem heita Robert? Ísak Bergmann og Agnes Perla eiga von á barni „Bakkus nær ekki þeim verstu af okkur, virðist helst velja þá bestu“ Skorar á Kraft að jafna framlag sitt til neyðaraðstoðar á Gasa Ef þú ert í þessum hópi ættir þú ekki að taka lýsi Karl Th. Birgisson er látinn Lena Dunham orðin mamma með hjálp staðgöngumóður Fóru áttatíu prósent fram úr áætlun Leiðir skilja hjá Siggu Dögg og Sævari Eyjólfs Kampakát yfir kampavíni og kavíar Amanda Seyfried og Thomas Sadoski skilin Hafi ekki sjálfur sparkað Macklemore: „Ég myndi aldrei bregðast aðdáendum“ Hundrað ára virðulegt setur með grænu baði og gufu Bob Mackie er látinn Friðrik Þór og Jóna Vigdís ástfangin Macklemore tjáir sig: „Fólk er drepið í dag og fólk verður drepið á morgun“ Æstir í nektarmyndir Mörthu Stewart Vakna við Star Wars-lagið alla morgna Hvað veistu um… Titanic? Húðdrottning bauð í gellugusu Ed Sheeran sparkar Macklemore Hið alræmda „Epstein drap sig ekki“-samsæri Ein pilla dró Panettiere til dauða Heldur sig til hlés og lifir skírlífi Vala Matt kom heljarinnar búslóð fyrir í sextíu fermetra íbúð Stjörnulífið: Í fyrsta skipti í bikiníi í útlöndum „Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“ Skúli Jón og Jennifer gengin í hnapphelduna Tekur árásum á samfélagsmiðlum fagnandi Sjá meira