Innlent

Mótmæla sinnuleysi stjórnvalda

Hörður Torfason verður sem fyrr fundarstjóri.
Hörður Torfason verður sem fyrr fundarstjóri. Mynd/Daníel Rúnarsson
Samtökin Raddir fólksins hafa boðað til útifundar á Austurvelli í dag klukkan þrjú en þetta er 31. fundurinn á Austurvelli undir merkjum samtakanna.

Fundurinn er boðaður til að mótmæla Icesave samkomulaginu og sinnuleysi stjórnvalda í málefnum heimila og fyrirtækja - eins og segir í tilkynningu frá samtökunum. Þá verður þess krafist að réttað verði tafarlaust yfir hvítflibbaglæpamönnum.

Fjórir taka til máls á fundinum þar á meðal Helgi Áss Grétarsson, lögfræðingur og Guðmundur Magnússon, varaformaður Öryrkjabandalagsins.

Fundarstjóri verður Hörður Torfason.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×