Erlent

Foreldrar Rhys litla segja fangelsisdóm móðgun

Foreldrar piltsins eru hissa á dómnum.
Foreldrar piltsins eru hissa á dómnum.

Foreldrar hins ellefur ára gamla Rhys Jones hafa lýst yfir reiði sinni með fangelsisdóm sem meðlimur glæpagengis sem útvegaði morðingja drengsins vopnið hlaut. Hann var dæmdur í sjö ára fangelsi.

Hinn ellefu ára gamli Rhys lést í örmum móður sinnar eftir að hann var skotinn í almenningsgarði í Liverpool á Englandi.

Sean Mercer afplánar nú tuttugu og tveggja ára fangelsisdóm fyrir morðið. James Yates útvegaði piltinum byssuna en hann hlaut sjö ára fangelsisdóm fyrir aðild sína að morðinu.



Rhys Jones

„Okkur finnst sjö ára vera móðgun," sögðu foreldrarnir við fjölmiðla þegar dómurinn lá fyrir.

„Í okkar huga þá er hann (Yates) sá sem útvegaði byssuna sem drap son okkar, því á hann skilið lengri refsingu."

Þrír aðrir meðlimir gengisins voru einnig dæmdir til fangelsisrefsingar fyrir aðild sína að málinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×