Meintur smyglari í mál við blaðamenn 27. maí 2009 10:53 Sigurjón M. Egilsson þarf að takast á við meintan Íslandsmeistara í fíkniefnasmygli. Mynd/GVA
Aðalmeðferð fer fram í dag í meiðyrðamáli Rúnars Þór Róbertssonar gegn blaðamanninum Erlu Hlynsdóttur og fyrrum ritstjóra DV, Sigurjóni M. Egilssyni. Rúnar höfðaði málið á þeim forsendum að blaðið hefði kallað hann fíkniefnasmyglara árið 2008. Sjálfur sat Rúnar í gæsluvarðhaldi vegna gruns um aðild að smyglinu árið 2007. Um var að ræða stófelldan innflutning á kókaíni. Fjögur kíló af efninu voru falin í Benz bifreið sem var á Sundahöfn. Málsvörn Rúnars þótti athyglisverð á sínum tíma. Hann hélt því fram að vegna fréttaflutnings DV um innflutninginn þá hafi hann verið meðvitaður um að engin efni væri að finna í bílnum þegar hann sótti hann. Dómstólar voru sammála og var hann sýknaður. Það var svo í apríl síðastliðnum sem Rúnar var aftur handtekinn. Núna vegna gruns um aðild að risasmygli með skútu frá Evrópu. Yfir tvöhundruð kíló af margvísislegum efnum fundust í skútunni en smyglið er það stærsta sinnar tegundar hér á landi. Þá var samverkamaður hans, sem einnig var ákærður í fyrra smyglinu, handtekinn vegna Papeyjarsmyglsins. Ekki er langt síðan Rúnar höfðaði skaðabótamál gegn íslenska ríkinu vegna ólögmæts gæsluvarðhalds. Ríkið var sýknað af kröfunni. Það þótti nægjanlega sterkur grunur um að hann ætti hlut að máli til þess að hann væri hnepptur í gæsluvarðhald vegna kókaín smyglsins. Þá heimtaði Rúnar fimmtán milljónir króna í skaðabætur. Núna sættir hann sig við 2,5 milljón krónur.
Mest lesið „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China hefur sölu á flugmiðum frá Íslandi til Kína Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Sjá meira