Ekki einhugur um staðsetninguna 12. desember 2009 05:45 Landspítalinn við Hringbraut. Staðsetning nýrrar byggingar verður til umræðu á málþingi á morgun. „
Þetta málþing er hugsað fyrir alla sem hafa áhuga á að átta sig á málum sem tengjast væntanlegu háskólasjúkrahúsi, staðsetningu og byggingu,“ segir Gestur Ólafsson, einn aðstandenda málþingsins, Nýr Landspítali – hvar, hvernig og fyrir hverja. Gestur segir að mikil viðbrögð sem hann og Árni Gunnarsson, stjórnarmaður í framkvæmdanefnd um byggingu nýs Landspítala - háskólasjúkrahúss, hafi fengið við aðsendri grein í Morgunblaðinu hafi sannfært þá um að þörfin fyrir málþing væri til staðar. Í greininni er meðal annars bent á að ódýrara væri að reisa nýtt sjúkrahús austar í borginni en á reitnum sem nú er um rætt, við Hringbrautina. Gestur gagnrýnir að ljúka eigi hönnun hússins áður en lokið hefur verið við skipulag svæðisins og bendir á að alls ekki ríki einhugur um staðsetningu sjúkrahússins. Á málþinginu taka til máls einstaklingar frá ýmsum geirum sem tengjast byggingu þess. Má þar nefna Sigurð Guðmundsson, forseta Heilbrigðisvísindasviðs HÍ, sem ræða mun fyrir hvern og hverja spítalinn er, Sigríði Kristjánsdóttur skipulagsfræðing sem ræða mun staðsetningu nýja spítalans og Magnús Skúlason, formann Íbúasamtaka miðborgarinnar, sem mun ræða samspilið við nágrenni spítalans. Málþingið hefst klukkan 10 á laugardag og því lýkur klukkan 15. Það er haldið í húsi Íslenskrar erfðagreiningar. Aðgangur er ókeypis.- sbt
Mest lesið Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Innlent Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Innlent „Við erum að svara kalli tímans“ Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Mælirinn segir 33 gráður Innlent „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Gular viðvaranir og allt að tuttugu og sjö stig Veður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Innlent Fleiri fréttir „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Sjá meira