Erlent

Skókastarinn hefur fengið tilboð um kvennabúr

Óli Tynes skrifar
Forsætisráðherra Íraks, Nuri al-Maliki, gerði tilraun til að verja skot blaðamannsins sem þeytti skóm sínum að Bush. MYND/AFP
Forsætisráðherra Íraks, Nuri al-Maliki, gerði tilraun til að verja skot blaðamannsins sem þeytti skóm sínum að Bush. MYND/AFP
Íraski fréttamaðurinn sem kastaði skóm sínum í George Bush hefur fengið ótal tilboð um bíla, kvennabúr og önnur jarðnesk gæði þegar honum verður sleppt úr fangelsi.

Muntazer al-Zaidi varð heimsfrægur þegar hann kastaði skóm sínum í George Bush í síðustu heimsókn forsetans til Íraks. Hann var ákærður fyrir að vanvirða erlendan þjóðhöfðingja og dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar. Hann verður hinsvegar látinn laus fljótlega vegna góðrar hegðunar í fangelsinu.

Múslimar um allan heim elska og dá al-Zaidi vegna gjörða hans. Og það ætti ekki að væsa um hann þegar hann losnar.

Fyrrverandi yfirmaður hans hefur byggt handa honum fjögurra svefnherberja hús. Hans bíður einnig glæný lúxusbifreið og loforð um margar fleiri.

Honum hafa verið boðin kvennabúr og peningagjafir streyma inn. Maður í Saudi Arabíu hefur boðið honum tíu milljónir dollara fyrir skóna sem hann kastaði í Bush.

Annar maður sem býr í Marokkó hringdi til þess að bjóða honum dóttur sína sem eiginkonu. Fjölmargar konur hafa einnig hringt í vinnuveitandann fyrrverandi og boðist til að giftast honum.

Al-Zaidi veit ekki alveg hvernig hann á að taka þessu sjónarspili. Honum var þungt í huga þegar hann kastaði skóm sínum með orðunum; „Þetta er kveðjukossinn hundurinn þinn. Þetta er fyrir ekkjurnar og börnin í Írak."

Al Zaidi hefur sagt bróður sínum að hann hafi verið undir það búinn að láta lífið. Hann hafi verið undrandi á því að lífverðir Bush skyldu ekki skjóta hann á staðnum.

Al Zaidi hefur einnig sagt að hann ætli að opna heimili fyrir munaðarlaus börn þegar hann sleppur úr fangelsi. Hann ætlar ekki að halda áfram sem sjónvarpsfréttamaður, enda yrði það hreinn sirkus. Í hvert skipti sem hann spyrði erfiðra spurninga yrði hann spurður að því hvort hann væri í skónum sínum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×