Skókastarinn hefur fengið tilboð um kvennabúr Óli Tynes skrifar 9. september 2009 12:24 Forsætisráðherra Íraks, Nuri al-Maliki, gerði tilraun til að verja skot blaðamannsins sem þeytti skóm sínum að Bush. MYND/AFP
Íraski fréttamaðurinn sem kastaði skóm sínum í George Bush hefur fengið ótal tilboð um bíla, kvennabúr og önnur jarðnesk gæði þegar honum verður sleppt úr fangelsi. Muntazer al-Zaidi varð heimsfrægur þegar hann kastaði skóm sínum í George Bush í síðustu heimsókn forsetans til Íraks. Hann var ákærður fyrir að vanvirða erlendan þjóðhöfðingja og dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar. Hann verður hinsvegar látinn laus fljótlega vegna góðrar hegðunar í fangelsinu. Múslimar um allan heim elska og dá al-Zaidi vegna gjörða hans. Og það ætti ekki að væsa um hann þegar hann losnar. Fyrrverandi yfirmaður hans hefur byggt handa honum fjögurra svefnherberja hús. Hans bíður einnig glæný lúxusbifreið og loforð um margar fleiri. Honum hafa verið boðin kvennabúr og peningagjafir streyma inn. Maður í Saudi Arabíu hefur boðið honum tíu milljónir dollara fyrir skóna sem hann kastaði í Bush. Annar maður sem býr í Marokkó hringdi til þess að bjóða honum dóttur sína sem eiginkonu. Fjölmargar konur hafa einnig hringt í vinnuveitandann fyrrverandi og boðist til að giftast honum. Al-Zaidi veit ekki alveg hvernig hann á að taka þessu sjónarspili. Honum var þungt í huga þegar hann kastaði skóm sínum með orðunum; „Þetta er kveðjukossinn hundurinn þinn. Þetta er fyrir ekkjurnar og börnin í Írak." Al Zaidi hefur sagt bróður sínum að hann hafi verið undir það búinn að láta lífið. Hann hafi verið undrandi á því að lífverðir Bush skyldu ekki skjóta hann á staðnum. Al Zaidi hefur einnig sagt að hann ætli að opna heimili fyrir munaðarlaus börn þegar hann sleppur úr fangelsi. Hann ætlar ekki að halda áfram sem sjónvarpsfréttamaður, enda yrði það hreinn sirkus. Í hvert skipti sem hann spyrði erfiðra spurninga yrði hann spurður að því hvort hann væri í skónum sínum.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Ráðgjöf Heiðu Kristínar kostaði fjórtán milljónir Innlent Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Erlent Lögreglan lýsir eftir Ingu Rún Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira