Erlent

Læknum ráðlagt að drekka sex kaffibolla á dag

Örþreyttum áströlskum læknum hefur verið ráðlagt að drekka sex bolla af kaffi á dag til þess að halda sér vakandi.

Heilbrigðisyfirvöld segja að dauðsföllum hafi fjölgað á sjúkrahúsum vegna þess að læknar þurfa að taka alltof langar vaktir og hugsi því ekki alltaf skýrt. Læknum er ráðlagt að innbyrða 400 milligrömm af koffíni á dag til að halda sér vakandi í vinnunni. Það jafngildir sex bollum af kaffi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×