Tólf krónu munur á kaup- og sölugengi evru í Leifsstöð 15. júní 2009 16:53 Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna.
Tæplega tólf krónu munur er á kaup og sölugengi evru í Landsbankaútibúinu í Leifsstöð. Nokkrir ferðamenn hafa haft samband við fréttastofu og gert athugasemdir við þetta. Hvort þetta sé hreinlega leyfilegt. Jóhannes Gunnarsson, formaður neytendasamtakanna, segir að frjáls verðmyndun sé á þessum markaði líkt og öllu öðru. Hann gerir hinsvegar athugsemd við framsetningu á upplýsingum um gengi gjaldmiðla á vefsíðum bankanna. „Þeir bera fyrir sig að opnunartíminn sé allur sólarhringurinn, það sé dýrara," segir Jóhannes um gengið á evru í Landsbankanum í Leifsstöð þar sem ferðamenn geta keypt evrur á 182,35 krónur, samkvæmt gengi dagsins, en selt sömu evrur fyrir einungis 170,86 krónur. „Við gerðum einhvern tímann könnun á seðlagengi hjá þeim, sem eru að selja gjaldeyri, þá þurftum við að hafa landsbankann almennt og Landsbankann í Leifsstöð. Það er dýrara að vera að kaupa gjaldeyrinn á síðustu stundu," segir Jóhannes. Á vefsíðum bankanna má sjá skráningu á gengi hinna ýmsu gjaldmiðla. Það gengi sem er á forsíðum vefjanna er þó ekki það gengi sem almenningur ætti að miða sig við. Þar er um að ræða svokallað viðmiðunargengi en það gengi sem hinn almenni borgari kaupir á er svokallað seðlagengi. Það má nálgast á síðunum eftir smá krókaleiðum. „Ég myndi telja það miklu eðlilegra að á forsíðunni væri birt seðlagengi en ekki eitthvert viðmiðunargengi. Það mætti vera skýrara á síðunni. Þegar verið er að setja fram svona margar útgáfur á gengi finnst mér skipta hvað er hvað. Það sem skiptir almenning mestu máli er seðlagengi," segir Jóhannes og bætir við: „Bankarnir og í raun Sparisjóðirnir líka, hafa byggt upp fyrirmyndarheimasíður og heimabanka. Þá eiga þeir ekki klikka á smáatriðum. Mér skilst að heimabankarnir séu þeir fremstu í heiminum nefnilega. Maður verður að leyfa bönkunum að eiga það sem þeir eiga," segir hann og hlær.
Mest lesið Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Innlent „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Innlent Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo Innlent Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Erlent Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Innlent Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Innlent Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Innlent „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Innlent Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Innlent Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Innlent Fleiri fréttir Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Tvö erindi borist Þingvallanefnd vegna tónleika Kaleo „Það gerist ekkert ef ljósin eru slökkt“ Ný atvinnustefna vanmeti stærstu tæknibreytingu samtímans Eftirför lögreglu endaði á Sorpu Tveir handteknu starfsmenn Eimskipa Skorað á Guðmund að snúa aftur heim Slagsmál, falsað ökuskírteini og ölvunarakstur Keyrðu utan í bílinn í eftirförinni Endurskoða gjaldsvæði borgarinnar Verulegt magn fíkniefna og hönnunarbolli í vorgjöf Flogið til Vestmannaeyja til mánaðamóta „Þyngra fyrir fæti að fá vinnu“ Hælisleitendamálin settu þrýsting á Reykjanesbæ Vilja verða áheyrnarfulltrúar og hækka laun sín gríðarlega Unnar kjötvörur af matseðli í skólum: „Stranglega bannað að hafa pylsupartý“ Sex handteknir og um verulegt magn sterkra efna að ræða Ekki hægt að taka framboð gilt þó flokkur misskilji reglur Góðkunninginn í vikulangt gæsluvarðhald vegna smygls Kvikuhlaup enn líklegasta sviðsmyndin Áfrýja ekki dómi vegna dauða dóttur þeirra Slökkti í málskotsbeiðni Matvís vegna Flame Sundlaugar opnar lengur um helgar í sumar Hyggst banna mánaðarlega hækkun leigu Ari hlær að gagnrýni á myndbandið Kosningapallborð fréttastofu: Baráttan um Reykjanesbæ Fimm hundruð bleikjur sluppu úr landeldisstöð „Ég reikna sterklega með því að karma banki upp á hjá þeim“ Betur fór en á horfðist við Mývatn: Lenti á þvervegi og tókst á loft Ekkert að frétta af rannsókn þjófnaðarins í Freysnesi Sjá meira