Fjölskyldan er númer eitt sagði Tiger þá Óli Tynes skrifar 15. desember 2009 11:08 Tiger Woods og Elin Nordgren.
Sky fréttastofan breska hefur ákveðið að flýta birtingu viðtals við kylfinginn Tiger Woods þar sem hann segir að fjölskyldan sé númer eitt hjá honum og golfið í öðru sæti. Viðtalið var tekið á Nýja Sjálandi í síðasta mánuði. Upphaflega var ætlunin að sýna viðtalið á jóladag. Vegna þess sem síðan hefur gerst hefur verið ákveðið að rúlla því út strax í kvöld. Tiger hefur forðast fjölmiðla síðan framhjáhald hans komst í hámæli eftir bílslysið sem hann lenti í á þakkagjörðardag. Síðan þá hafa ekki færri en tíu konur lýst því yfir að þær hafi átt í ástarsambandi við hann. Tiger hefur ekki gengist við þeim öllum en síðastaföstudag tilkynnti hann að hann væri hættur að spila golf um óákveðinn tíma. Hann viðurkenndi einnig að hafa verið Elínu Nordgren eiginkonu sinni ótrúr. Á heimsíðu sinni skrifaði hann; -Ég er mjög meðvitaður um um þau vonbrigði og sársauka sem ég hef valdið svo mörgu fólki með ótrúmennsku minni, sérstaklega eiginkonu minni og börnum. Ég verð að einbeita mér að því að verða betri eiginmaður, faðir og manneskja. Þau hjónin hafa verið gift í fimm ár og eiga tveggja ára gamla dóttur og tíu mánaða gamlan son. Óstaðfestar fregnir herma að Elín hafi þegar haft samband við lögfræðing vegna skilnaðar.
Mest lesið Stóra aðgerðin valdi titringi á fíkniefnamarkaði Innlent Aðstoðarskólastjóri Stapaskóla biður nærsamfélagið um hjálp Innlent „Ég kann ekki að meta það þegar ég er sökuð um ósannindi eða blekkingar“ Innlent „Fokk ðe queers og fullt af atkvæðum?“ Innlent „Áfall fyrir starfsfólk“ Innlent Áslaug Arna boðar endurkomu á Alþingi Innlent Skólameistari hefur fengið nóg og segir af sér Innlent Hafa fundið nýtt jarðhitasvæði á Hellisheiði Innlent Gripinn í blokk við þvottastúss eftir árásina Innlent Skálmöld stígur ölduna í héraðsdómi Innlent Fleiri fréttir Boðar tíu daga vopnahlé milli Ísraels og Líbanon Páfinn skaut föstum skotum að harðstjórum Íranir geti valið auðveldu leiðina eða þá erfiðu Stjórnvöld í Frakklandi vilja fá ríkisborgara lausan Viðræður sagðar standa yfir en ekkert fast í hendi Að minnsta kosti fimmtán létust í árásum Rússa á Úkraínu Suður-Grænland fær nýjan alþjóðaflugvöll Gríðarleg vonbrigði meðal kennara með orð Ingu Sæland í morgun Flóttamenn drukknuðu þegar yfirfullum togara hvolfdi Hælisleitendur aðstoðaðir við að þykjast vera samkynhneigðir Segir viðræður mögulega hefjast á ný á næstu dögum Fyrstu viðræður Ísraela og Líbana Kona forsætisráðherra Spánar ákærð fyrir spillingu Staðfesting úrslita dönsku kosninganna í uppnámi Stórt smyglmál til rannsóknar og eitrað fyrir gæludýrum í Kjós Lýsir yfir fyrsta sigri vélmenna á vígvellinum Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Segist ekki munu biðja páfa afsökunar Hezbollah mótmælir viðræðum og Íranir krefjast skaðabóta Mótmæla samruna Paramount og Warner Bros Öllum írönskum skipum útrýmt nálgist þau herkví Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Sjá meira