Hrikalegt að missa ævistarfið 23. júní 2009 03:00 innbrot Brotist var inn á heimili Þorleifs Friðrikssonar í Kópavogi. Fréttablaðið/Vilhelm „
Þetta er alveg skelfilegt. Ef ég gæti bara fengið innvolsið úr annarri hvorri tölvunni til baka yrði ég mjög hamingjusamur og myndi borga gull og græna skóga,“ segir Þorleifur Friðriksson sagnfræðingur. Brotist var inn á heimili Þorleifs og fjölskyldu í Kópavoginum á föstudaginn og stolið þaðan meðal annars tveimur fartölvum, flakkara og minniskubbi sem innihéldu lokahandrit að öðru bindi sögu Dagsbrúnar, sem Þorleifur hefur nýlokið við að skrifa, en fyrsta bindið kom út fyrir tveimur árum. „Það er hrikalegt að missa ævistarfið sitt á þennan hátt. Þetta er grundvallarrit í íslenskri verkalýðssögu,“ segir Þorleifur. Auk þess að hafa á brott með sér tölvurnar og fylgihluti tóku þjófarnir skartgripi í eigu eiginkonu Þorleifs, doktorshringinn hans og gullbakka frá átjándu öld. „Gullbakkinn er gamall ættargripur sem átti að fara á Þjóðminjasafnið. En þetta eru einungis hlutir og því léttvægir. Í tölvunum voru hins vegar mörg ár af vinnu, og til viðbótar frumsamin tónlist eftir son minn, sem er tónlistarmaður.“ Þorleifur segist hafa lært af tíðum frásögnum af innbrotum í fjölmiðlum. „Ég hafði vistað öll skrifin á fjórum stöðum, þar á meðal á Macintosh-tölvu sem hrundi rétt fyrir helgi. Það er greinilega erfitt að verja sig fyrir svona uppákomum í þessu þjóðfélagi,“ segir Þorleifur. Þeir sem gætu gefið vísbendingar um hvar handritið að bók Þorleifs er að finna eru beðnir um að hafa samband við lögreglu.- kg
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Sjá meira