Innlent

Lýst eftir blómaníðing

Blómaníðingur keyrði tvisvar yfir blómabeðið.
Blómaníðingur keyrði tvisvar yfir blómabeðið.

Ekið var í tvígang yfir sumarblómabeð í Laugardalnum í gær en Axel Knútsson, yfirverkstjóri borgargarða í Laugardal, er afar ósáttur við skemmdarverkið.

„Við lukum við sumarblómabeð í Laugardalnum í gær en þegar við komum til vinnu í morgun höfðu þau verið eyðilögð," segir hann en mikil vinna fór forgörðum að hans sögn.

Borgarstarfsmenn hafa farið mikinn í gróðursetningum á vegum Umhverfis- og samgöngusviðs að sögn Axels. Þeir sem verða varir við tilraunir til að skemma blómabeð eru vinsamlegast beðnir um að senda upplýsingar á heimasíðu Umhverfissviðs eða hringja í 411 1111.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×