„Ég er miklu flottari sem Geir Haarde“ Breki Logason skrifar 1. janúar 2009 11:31 Örn Árnason leikari.
Örn Árnason leikari segist þurfa að horfa betur á Skaupið til þess að geta fellt endanlegan dóm yfir frammistöðu þeirra sem að því stóðu. Örn hefur tekið þátt í mörgum Skaupunum og fannst margt í Skaupi gærkvöldsins mjög vel gert. Hann bíður Kjartan Guðjónsson velkominn í hóp hinna útvöldu sem leikið hafa Davíð Oddsson og segist sjálfur miklu flottari en Jóhannes Haukur sem Geir H. Haarde. „Mér fannst margt mjög gott en á köflum fannst mér þetta svolítið hæggengt, það er það sem ég á eftir að skoða betur og sjá hversvegna svo var. En það voru flottir sprettir í þessu," segir Örn sem telur að Skaupið hafi frekar verið skrifað fyrir yngri kynslóðina með tilvitnanir í bíómyndir og aðrar sjónvarpsstöðvar sem kannski ekki allir hafi áttað sig á. „En ég áttaði mig á því þar sem ég er nú að vinna við þetta," segir Örn sem fagnar því að Kjartan Guðjónsson sé kominn í hóp hinna útvöldu sem túlkað hafa Davíð Oddsson. „Ég er nú að vinna með Kjartani um þessar mundir og þori því ekki að segja neitt annað en að hann hafi verið æðislegur. Hann var nú eitthvað að hrauna yfir mig um daginn og sagði að ég væri ekkert líkur Davíði. Það er allt í lagi að leyfa þessum unglingum að hafa sig í frammi," segir Örn og hlær. Hann segir nokkra hafa spreytt sig á Davíð Oddssyni í gegnum tíðina og nefnir þá Jóhann Sigurðarson, Magnús Ólafsson og svo Kjartan. „Ég er lang bestur af þeim og stend upp úr, þó ég sé bara meðalmaður á hæð." Frammistaða Jóhannes Hauks Jóhannessonar sem Geir H. Haarde vakti nokkra athygli í Skaupinu í gærkvöldi. „Ég er miklu flottari maður," segir Örn og hlær en hann hefur einnig leikið Geir í gegnum árin. „Hann er svo nýbyrjaður í þessum bransa, það vantar alla þyngd í hann." Örn er þekktur sprengjufíkill og það var ekkert lát í því í gærkvöldi. „Ég sprengi alltaf mikið og réttlæti það með því að ég nota þessi klassísku fíkniefni í mjög litlum mæli. Flugeldaneysla mín vegur því upp á móti því sem ég hefði annars reykt og drukkið á árinu. En ég hef alveg ofboðslega gaman af þessu og ætla ekki að leggja þennan sið af."
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Útför Björgvins opin almenningi Lífið Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Lífið Krummi kveður pabba sinn Lífið Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Lífið Einvígi aldarinnar endurtekið Lífið Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Lífið Milljónir í að efla tónleikastaði í miðbænum Tónlist Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Lífið „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Lífið Fleiri fréttir Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ „Ég var mjög skrítinn krakki“ Bryndís Líf orðin móðir Yfirgaf yfirstéttina fyrir loftárásir, listaverkarán og sprengjugerð Oddvitaáskorunin: „Big Papa“ uppáhalds gælunafnið Sjá meira