Erlent

Viðskiptahagsmunir ofar réttlætinu

Gordon Brown
Gordon Brown
Rifrildið yfir samskiptum Bretlands og Líbýu tók nýja stefnu í dag þegar Gordon Brown var sakaður um að hafa veigrað sér við að krefja Libyumenn um skaðabætur til þeirra fjölskyldna sem misstu ástvini fyrir byssum og sprengjum Írska lýðveldishersins. Libya sá lýðveldishernum fyrir vopnum áratugum saman.

Brown er sakaður um að hafa sett viðskiptahagsmuni ofar réttlætinu. Brown neitar þessum ásökunum en hann á þegar í vandræðum með Libyutengslin eftir að í ljós kom að hann hafði sagt ósatt þegar hann neitaði því að olíuhagsmunir hefðu ráðið því að einum Lockerbie morðingjanna var sleppt úr fangelsi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×