Erlent

Blóðugir bardagar í Birmingham

Blóðugir götubardagar voru háðir í Birmingham í dag þegar samtök sem kalla sig verjendur Englands komu saman til þess að mótmæla öfgasamtökum múslima.

Samtök sem kenna sig við and-fasista tóku á móti þeim og kastað var bæði flöskum og grjóti. Um tíma voru um 250 manns í blóðugum slagsmálum.

Þegar lögreglan greip í taumana var hún einnig grýtt og lauk óeirðunum ekki fyrr en að níutíu manns höfðu verið handteknir og fluttir á brott. Margir voru sárir en enginn lífshættulega.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×