Í gæsluvarðhald vegna skelfilegrar líkamsárásar 25. júní 2009 13:28 Hæstiréttur. Mynd/ Valli
Hæstiréttur staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni vegna líkamsárásar í Bakkagerði 1 á sunnudagskvöld. Maðurinn hefur verið úrskurðaður í gæsluvarðhald til 29. júní. Í greinargerð lögreglu kemur fram að henni hafi borist tilkynning um mikið slasaðan mann í heimahúsi í Reykjavík. Þegar lögregla kom á staðinn var maðurinn alblóðugur á höfði og gekkst hann undir aðhlynningu á slysadeild Landspítalans, „þar sem hann reyndist vera með augntóftargólfsbrot á báðum augum, þrjá skurði á höfuðleðri, allir langir og gapandi. Þá hafi hann verið með tvo skurði á enni, á neðri vör hafi verið sprungið í gegn fyrir miðju, og innan á vörinni var ílangur og mjög tættur skurður. Auk þessa hafi brotaþoli hlotið marga yfirborðsáverka á höfði, brjóstkassa og útlimum." Í kjölfarið fór lögregla að öðru húsi í Reykjavík þar sem grunur var um að brotaþoli hafi orðið fyrir árásinni. Þar inni hafi glögglega mátt sjá ummerki eftir líkamsárás, enda blóð víða á veggjum, þvegill, sem hafi verið blautur og blóði drifinn, á gólfi, þá hafi mátt finna blóð á húsgögnum. Þá fannst blautt og blóðugt handklæði í ruslatunnu við húsið. Í þessari heimsókn voru fimm handteknir, þar á meðal hinn kærði. Lögregla telur nauðsynlegt vegna rannsóknarhagsmuna að kærði verði áfram í haldi. Þá leitar lögregla einnig að bróður kærða sem er sterklega grunaður um aðild að málinu.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Ísland ýmist í Meistaradeildinni eða um miðja aðra deild Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Sjá meira