Þingmaður í nær hálfa öld 27. ágúst 2009 00:45 Á spjalli við forsetann Barack Obama og Edward Kennedy.Nordicphotos/AFP „
Mikilvægum kafla í sögu okkar er lokið,“ sagði Barack Obama Bandaríkjaforseti þegar fréttir bárust af því að öldungadeildarþingmaðurinn Edward M. Kennedy væri látinn. Hann var fyrst kosinn í öldungadeild Bandaríkjanna í nóvember árið 1962. Hann hafði því verið þingmaður í heil 47 ár þegar hann lést á þriðjudag af völdum krabbameins, sem hann hafði glímt við í rúmt ár. „Í fimm áratugi hafa nánast öll lög, sem sett hafa verið til að efla borgararéttindi eða bæta heilbrigðisástand og efnahagslega velferð bandarísku þjóðarinnar borið nafn hans og verið afraksturinn af starfi hans,“ sagði Obama, og dró ekki úr þeirri aðdáun sem demókratar hafa á hinum nýlátna flokksbróður sínum, „frjálslynda ljóninu“ eins og þeir nefndu hann gjarnan. Edward Moore Kennedy, jafnan nefndur Ted, varð langlífastur Kennedy-bræðranna, sem voru með valdamestu bræðrum Bandaríkjanna um það leyti sem Edward settist fyrst á þing. Bróðir hans, John F. Kennedy, var myrtur í nóvember árið 1963 eftir að hafa verið forseti Bandaríkjanna í tæp þrjú ár. Þriðji bróðirinn, Robert F. Kennedy, var dómsmálaráðherra í ríkisstjórn bróður síns, en féll einnig fyrir hendi morðingja sumarið 1968 í miðri kosningabaráttu til forsetaembættis. Kennedy-fjölskyldan var ekki aðeins áhrifamikil í Bandaríkjunum heldur var einkalíf hennar linnulítið í kastljósi fjölmiðla. Sjálfur varpaði Edward skugga á feril sinn, sem hann losnaði aldrei við, þegar hann varð valdur að dauða vinkonu sinnar síðla kvölds í júlímánuði árið 1969. Hann hafði verið að skemmta sér á Chappaquiddick-eyju með hópi ungra kvenna sem höfðu aðstoðað bróður hans í kosningabaráttunni árið áður. Einni þeirra, Mary Jo Kopeche, bauð hann far heim með sér, en sú ökuferð endaði úti í sjó með þeim afleiðingum að hún lést. Kennedy fór af vettvangi án þess að tilkynna slysið, en baðst síðar afsökunar á því. Kjósendur létu þó ekki þetta atvik stöðva sig í að kjósa hann áfram á þing, en þegar hann hugðist bjóða sig fram sem forsetaefni demókrata áratug síðar hafði Jimmy Carter betur. Stuðningur hans við framboð Baracks Obama á síðasta ári virðist þó hafa ráðið miklu um að Obama varð forsetaefni demókrata, og vann síðan sigur þegar að kosningum kom. gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Ekki lengur vafi á því hver hinn látni er Innlent Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Erlent Hóteláform Hreiðars strand vegna vegleysu Innlent Yfirlýsing Landskjörstjórnar: „Fullyrðing Morgunblaðsins er alfarið röng“ Innlent Ungir Miðflokksmenn vildu ekki taka þátt í Gleðigöngunni Innlent Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Erlent Kæra varðhald þriðja mannsins til Landsréttar Innlent Gæsluvarðhalds krafist yfir þriðja manninum Innlent Fleiri fréttir Vill aðskilja bólusetningar gegn mislingum, hettusótt og rauðum hundum Efnt til æfinga í Taívan fyrir umfangsmikið rof á fjarskiptum Assad dæmdur til dauða í heimalandinu Réttað yfir fyrrverandi glæpaforingja vegna morðsins á Tupac Flaug hvorki með gömlu né nýju Air Force One Dregur enn frekar úr líkum á samningi með skaðabótakröfu Fylgdust með rússneskum njósnara gefa útsendara gjöf Tala látinna komin yfir hundrað Brutu reglur þegar þau tilkynntu óvart andlát konungsins Harður jarðskjálfti skók Kólumbíu og Ekvador Mannfall í drónaárás á olíuhreinsistöð í Tatarstan Frederiksen og Meloni taka höndum saman gegn innflytjendum Heitustu sumarmánuðir í Vestur-Evrópu í sögunni Ætlar að láta frysta egg sín og útilokar ekki forsetaframboð Segir allt að 50 þúsund hermenn frá Norður-Kóreu á leið til Rússlands Handtekinn eftir að kona og barn drukknuðu við Frelsissyttuna Netanjahú hafnar friðaráætlun Trumps Ríflega hundrað og sextíu ungmenni handtekin Forstjórinn ræður hvort upptökur úr búkmyndavélum verði birtar Gefur aftur í skyn að hann vilji embættið á ný Rússar taldir bera ábyrgð á sjálfsprengjudrónanum Heitir því að herða byssulöggjöf í kjölfar árásar Spánverjar taka upp landamæraeftirlit gagnvart Ítalíu Blanche staðfestur sem dómsmálaráðherra Sonur Bidens segir náðunina ekki góða ákvörðun Kampavínið klárt þegar hann beið eftir að morðingjar létu til skarar skríða Gert að greiða tugi milljarða fyrir að passa ekki öryggi barna Sjö látnir eftir skotárás í grunnskóla Biður fjársterka stuðningsmenn um að styðja Vance 2028 Íranir segja viðræður á lokametrunum Sjá meira