Innlent

615 dagar

Ríkisstjórnarsamstarf Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks lifði í 615 daga. Þrátt fyrir valdabrölt og pólitískt argaþras kvöddust formennirnir með kossi í gær.

12 ára ríkisstjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks lauk eftir síðustu kosningar. Örfáum dögum eftir úrslitin ákváðu Sjálfstæðisflokkur og Samfylking að hefja stjórnarmyndunarviðræður. Formennirnir funduðu stíft á og kynntu stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar á sólríkum degi á Þingvöllum þann 23. Maí.

Í stjórnarsáttmála hinnar nýju ríkisstjórnar var lögð rík áhersla á trausta og ábyrga efnahagsstjórn. Tryggja átti lága verðbólgu og lágt vaxtastig. Þá var einnig lögð áhersla á kraftmikið atvinnulíf auk þess sem efla átti Fjármálaeftirlitið til þess að íslenski fjármálamarkaðurinn nyti fyllsta traust. Önnur markmið voru að bæta hag aldraðra og öryrkja, styrkja menntakerfið, tryggja heilbrigðisþjónustu á heimsmælikvarða og að umræða um Evrópumál væri opinská.

Síðasta haust breyttist margt og ljóst að forsendur fyrir stjórnarsáttmálanum voru brostnar. Bankahrunið varð til þess að leita þurfti ásjár Alþjóðagjaldeyrissjóðsins auk þess sem þúsundir hafa mótmælt og krafist kosninga undanfarna mánuði. Fylgi ríkisstjórnarinnar hefur dalað mikið á síðustu mánuðum og var samkvæmt síðustu könnun Fréttablaðsins 20 prósent.

Mitt í þessu fárvirði hafa formenn flokkanna glímt við alvarleg veikindi. Ingibjörg Sólrún greindist með góðkynja höfuðmein í New York og hefur þurft að gangast undir aðgerðir í þar og í Svíþjóð vegna þess. Þá tilkynnti Geir H. Haarde í síðustu viku að hann hafi greinst með illkynja æxli í vélinda og muni fara utan til að gangast undir aðgerð.

Samstarfi ríkisstjórnarinnar lauk í svo gær, 615 dögum eftir að það hófst.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×