Arctic Sea: Enginn vopnafarmur um borð að sögn Lavrovs 8. september 2009 12:12 Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands. Mynd/AP
Utanríkisráðherra Rússlands vísar alfarið á bug fréttum þess efnis að flutningaskiptið Arctic Sea, sem hvarf um tíma í sumar, hafi verið að flytja háþróaðar rússneskar loftvarnareldflaugar til Írans. Skipið hvarf í lok júlí en það var sagt flytja timburfarm frá Finnlandi til Alsír. Rússneski sjóherinn fann skipið nærri Grænhöfðaeyjum um miðjan ágúst. Átta menn voru handteknir og ákærðir fyrir að ræna því. Í síðustu viku hafði Lundúnablaðið Times eftir heimildarmönnum í Rússlandi og Ísrael að skipið hafi verið að flytja vopn til Írans. Þá greindi breska ríkisútvarpið, BBC, frá því að rússneskur blaðamaður hefði flúið heimalandið eftir að hótað hafi verið að handtaka hann vegna frétta sem hann hafi skrifað um meintan vopnaflutning um borð í skipinu. Öryggislögreglan rússneska hefur ekki tjáð sig um ásakanir blaðamannsins. Vangaveltur hafa verið í erlendum miðlum um að útsendarar ísraelsku leyniþjónustunnar, Mossad, hafi stöðvað ferð skipsins og ætlað sér að koma í veg fyrir að ólögleg vopnasending bærist í hendur herskárra í Mið-Austurlöndum. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, vísar þessu alfarið á bug og segir um rangar fréttir að ræða. Málið verið rannsakað ofan í kjölinn fyrir opnum tjöldum. Maltverskum yfirvöldum verði boðið að taka þátt enda Arctic Sea skráð á Möltu.
Mest lesið Netþrjótar herja á „mömmur“ landsins Innlent Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Erlent Hvalur skaut upp höfði upp við bryggjuna: „Þetta var alveg magnað“ Innlent „Allt uppselt“ af símum eftir rigninguna Innlent Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Erlent Slysið á sama stað og við sömu aðstæður og fyrri banaslys í fjörunni Innlent Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Erlent Spennandi traktorstorfæra á Flúðum Innlent Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Erlent Þorgerður styður stofnun leyniþjónustu Innlent Fleiri fréttir Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara „Ekki taka. Endurheimta. Þetta er okkar“ Arabaríkin sameinast um afvopnun Hamas og fordæmingu á árásunum 7. október Bukele ryður leiðina að einræði í El Salvador Freista þess að hindra að Bandaríkin fargi miklu magni getnaðarvarna Hvatti ríki til að stuðla að stjórnarskiptum í Rússlandi Tollar á vörur frá Íslandi verða 15 prósent samkvæmt forsetatilskipun Leynilega geimfarið sent á sporbraut í áttunda sinn Samþykkja ný lög um spillingarrannsóknir eftir mótmæli Múhameð eykur forskotið og enginn nefndur Keir Gera miklar breytingar á kjördæmum Texas, að beiðni Trumps Suðureyjargöng skilyrt hækkun eftirlaunaaldurs Kínverjar leita leiða til að granda gervihnöttum Musks Í áfalli eftir að hafa fengið bréf frá árásarmanninum inn um lúguna Dregur í land og segir Starmer og félaga verðlauna Hamas Sjá meira