Innlent

Hústökumenn komnir með nýtt heimili

Hústaka við Vatnsstíg fyrr í sumar.
Hústaka við Vatnsstíg fyrr í sumar.

Stjórnleysingjar eru búnir að taka sér bólfestu í nýju húsi en áður voru þeir á Vatnsstíg 4 sem hefur verið kveikt tvisvar í undanfarna daga. Nú er hústökufólk búið að hreiðra um sig í gulu einbýlishúsi ofarlega á Skólavörðustígnum, við hliðina á Krambúðinni.

Þar má sjá einkennismerki stjórnleysingja úðað á rafmagnskassa með úðabrúsa. Svartur fáni hangir á girðingunni til marks um veru stjórnleysingjanna í húsinu.

Húsið hefur verið autt í talsverðan tíma en ekki er ljóst hver er eigandi þess né hvort hann hafi gefið stjórnleysingjunum leyfi til þess að búa í húsinu.

Þegar Vísir hafði samband við lögreglunar hafði hún ekki heyrt af hústökunni en hugðist kanna málið nánar.

Mikil átök brutust út þegar hústökufólk neitaði að yfirgefa Vatnsstíg fyrr í sumar. Kalla þurfti til sérsveit lögreglunnar til þess að ryðjast inn í húsið en þeir mættu mikilli andspyrnu. Að lokum var fólkið handtekið og fært á lögreglustöðina en öllum var sleppt samdægurs.

Þau létu sér þá ekki segjast heldur opnuðu á ný fríverslun sem var í kjallara hússins. Henni var svo aftur lokað af yfirvöldum og eigendum hússins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×