Aldrei fór ég á Rex um helgina 22. janúar 2009 06:00 Trúbadorinn knái Svavar Knútur skipuleggur tónlistarhátíðina Aldrei fór ég á Rex um helgina. NMYND/Fréttablaðið/heiða
Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég á Rex verður haldin á þremur stöðum um helgina. Um er að ræða órafmagnaða hátíð þar sem tæplega fjörutíu tónlistaratriði verða kynnt til sögunnar. Verða þau mestmegnis í höndum trúbadora. „Yfirskriftin er Aldrei fór ég á Rex en við bjóðum samt fólk alveg velkomið sem hefur farið á Rex,“ segir skipuleggjandinn og trúbadorinn Svavar Knútur. „Ég fagna því að ruglið er svolítið að víkja. Ég vona að þetta sé í síðasta skipti sem við Íslendingar erum í stórum kappakstri og að tími lúxusbíla og fyrirtækja-„sponsora“ sé að víkja,“ segir hann og vonar að samhjálp og nægjusemi taki nú völdin í þjóðfélaginu. Sams konar hátíð var haldin í fyrsta sinn hérlendis síðasta haust við góðar undirtektir. Þá var hún minni í sniðum, enda aðeins haldin á Kaffi Rósenberg en núna hafa Hljómalind og Nýlenduverslun Hemma og Valda bæst í hópinn. Á meðal þeirra sem koma fram eru Helgi Valur, Myrra Rós, Árstíðir, Elíza Geirs, Ragnar Sólberg, Elín Ey, Svavar Knútur og Pikknikk. Einnig koma fram bresku trúbadorarnir Sisha PM og Kid Decker. Svavar segir að hátíðin sé haldin til að efla grasrótina og skapa tengsl við erlenda listamenn, enda hefur sams konar hátíð verið haldin í Ástralíu og Þýskalandi. Eftir hátíðina hyggur Svavar til að mynda í tónleikaferðalag um Þýskaland og Ítalíu í von um að skapa enn frekari tengsl. Ókeypis er inn á Aldrei fór ég á Rex og verða fyrstu tónarnir slegnir á Kaffi Rósenberg á föstudag klukkan 19.- fb
Mest lesið Útför Björgvins Halldórssonar í beinni á Vísi og Sýn Tónlist Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Lífið Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Lífið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Hvað veistu um... Tenerife? Lífið Forrest Gump rokksins allur Tónlist Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Lífið Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Lífið Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Fleiri fréttir Hvað veistu um... Tenerife? Bein útsending: Nítján stúlkur vilja verða Ungfrú Ísland Það heitasta í veislutertum Orkugeirinn kom saman á ársfundi Orkuveitunnar Áttu að föndra dýr aftan á bolinn Keppast um titilinn Ungfrú Ísland í kvöld Jenner og Elordi verið að hittast síðustu mánuði Oddvitaáskorunin: Þegar byrjuð að skrifa ævisöguna Einhleypir og eftirsóttir sumarstrákar Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Sjá meira