Látinn laus vegna olíu 5. september 2009 10:58 Abdelbeset Ali Mohamed al Megrahi
Jack Straw dómsmálaráðherra Bretlands hefur viðurkennt að olíusamningur hafi ráðið miklu um að einum líbysku Lockerbie morðingjanna var sleppt úr fangelsi. Gordon Brown forsætisráðherra hafði áður harðneitað því. Það vakti mikla óánægju og ólgu þegar stjórnvöld í Skotlandi ákváðu að sleppa Libyumanninum Abdelbaset al Megra-hi úr fangelsi. Hann var einn þeirra sem dæmdur var í lífstíðarfangelsi fyrir að koma fyrir sprengju í Pan American þotu árið 1988. Sprengjan sprakk þegar þotan var yfir bænum Lockerbie í Skotlandi. Tvöhundruð og sjötíu manns frá tuttugu og einu þjóðlandi létu lífið. al-Megrahi er að deyja úr krabbameini og stjórnvöld í Skotlandi segja að honum hafi verið leyft að snúa heim af mannúðarástæðum. Því hefur verið haldið fram að olíuauður Libyu hafi átt þar hlut að máli, en því hefur verið hafnað. Í þessari viku harðneitaði Gordon Brown því að olían hefði skipt nokkru máli. Jack Straw dómsmálaráðherra Bretlands hefur nú viðurkennt að olían hafi vissulega skipt miklu máli. Óljóst er hvaða áhrif þetta hefur á stöðu Browns. Straw benti á að samningur um lausn Megra-his hafi verið undirritaður fyrir tveim árum, þegar ljóst var að hann myndi deyja úr krabbameini. Tony Blair var þá forsætisráðherra og Straw segist ekki vita til þess að Brown hafi komið nokkuð að málinu. Og lausn hans var aðeins einn liður í margvíslegu samkomulagi sem gert var við Libyumenn til þess að koma Libyu inn í samfélag þjóðanna, frá því að vera hálfgert útlagaríki. Um það leyti sem samningurinn var undirritaður var breski olíurisinn BP að sækjast eftir ábatasömum samningi við Libyumenn. Straw segir að hann hafi vissulega horft til þess og ætli ekki að biðjast afsökunar á því. Þess má geta að BP fékk samninginn.
Mest lesið Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Erlent Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Innlent Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Innlent Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Innlent Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Erlent Vill að maðurinn viðurkenni að hann sé ekki faðir drengsins Innlent Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Innlent Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Innlent Fleiri fréttir Gagnrýndur fyrir að nota gervigreind í embættisstörfum Vanræksla við hönnun, vottun, viðhald og skoðun Clinton-hjónin krafin svara vegna Epstein-málsins Hyggjast rukka suma ferðamenn um brottfarartryggingu Hollendingar kaupa vopn af Bandaríkjunum fyrir Úkraínumenn Handtökuskipun gefin út á hendur þingmönnum Demókrataflokksins Neitað um lausn gegn tryggingu Bolsonaro í stofufangelsi Danskur dýragarður óskar eftir gæludýrum til að fóðra rándýrin Annar leikarinn sem tekur eigið líf eftir ölvunarakstur Elskar auglýsingarnar með Sweeney fyrst hún er Repúblikani Tæplega þrjátíu drepin á meðan þau biðu eftir mat Fyrrverandi ísraelskir foringjar biðla til Trump að ljúka stríðinu Tugir drukknuðu og margra enn saknað Demókratar flýja Texas svo þing geti ekki komið saman Hamas til í að gefa gíslum hjálpargögn ef Ísrael hleypir þeim inn á svæðið Maður lést eftir fall af svölum á tónleikum Oasis Rússneskt eldfjall gýs í fyrsta sinn í sex hundruð ár Segir „erfiðara“ að náða Diddy eftir „hræðilegar yfirlýsingar“ Leiddi fordæmalausa bænastund á Musterishæð Eldur í olíugeymslu í Sochi eftir drónaárás Reiður Trump segir Schumer að fara til helvítis Grunaður um að myrða heila fjölskyldu en skilja ungabarnið eftir á lífi Beinaber gísl látinn grafa eigin gröf á Gasa Að bugast á hálf nöktum ferðamönnum og beita sektum „Fordæmalaus hitabylgja“ leikur Skandínava grátt Maxwell flutt í þægilegra fangelsi Breyti engu á jörðu niðri að viðurkenna sjálfstæði Palestínu Trump ræsir út kjarnorkukafbáta eftir „ögrandi“ ummæli Rússa „Clinton áætlunin“ líklega tilbúningur rússneskra njósnara Sjá meira