Líka kreppa hjá al-Qaeda Atli Steinn Guðmundsson skrifar 13. október 2009 08:56 „Ég er með fimm háskólagráður!“ Bin Laden er sagður skítblankur þessa dagana.
Enginn sleppur undan kreppunni og nú eiga meira að segja al-Qaeda-hryðjuverkasamtökin í lausafjárvanda. Breska ríkisútvarpið BBC hefur það eftir áreiðanlegum heimildamönnum að Osama bin Laden og félagar í al-Qaeda leiti nú allra leiða til að verða sér út um fjárhagsstuðning í kreppunni. Þetta gæti reynst þrautin þyngri þar sem hryðjuverkamenn eiga hvorki greiða leið að nýsköpunarsjóði né atvinnuleysisbótum og nú ku yfirdráttarheimild samtakanna vera alveg í botni. Talíbanar eru hins vegar sagðir vera í mun betri málum þar sem heróínframleiðsla í Afganistan er víst með blómlegasta móti um þessar mundir en hún er helsta lífæð þeirra. Al-Qaeda eru hins vegar samtök og sem slík reiða þau sig á frjáls framlög í stað eiturlyfjagróða en eitthvað hefur harðnað á dalnum í frjálsum framlögum til hryðjuverkasamtaka síðan árið 2007 þegar hægt var að fjármagna nánast hvað sem var með hvaða hætti sem mönnum sýndist. Þá berast einnig fréttir af því að shia-múslimasamtökin Hezbollah hafi líka þurft að hefja niðurskurðarhnífinn á loft og á þeim bænum grynnki menn á reikningahrúgunni með því að selja ólöglegar tónlistarupptökur, hugbúnað og smyglaðar sígarettur.
Mest lesið Íbúar miður sín og fuglalíf nær allt farið Innlent Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Segir andstæðinga viðræðna leita í handbók Farage og Reform Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Fleiri fréttir Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Sjá meira