Koizumi les inn á teiknimyndir í ellinni Atli Steinn Guðmundsson skrifar 13. október 2009 08:53 Junichiro Koizumi.
Junichiro Koizumi, fyrrum forsætisráðherra Japans, er langt í frá sestur í helgan stein þótt hann sé hættur í pólitíkinni og ljáir nú teiknimyndapersónum ómþýða rödd sína. Japan hefur alið af sér marga bragðminni stjórnmálamenn en Koizumi. Fyrir utan skörulegt útlit sitt er maðurinn þekktur Elvis Presley-aðdáandi og gegndi embætti forsætisráðherra Japans tímabilið 2001 til 2006 fyrir Frjálslynda lýðræðisflokkinn. Á embættistíma sínum tókst Koizumi það sem engum öðrum japönskum embættismanni hefur nokkurn tímann tekist en það var að einkavæða póstþjónustu landsins hversu merkilegt sem það svo sem þykir meðal okkar Evrópubúa. Koizumi var einna umdeildastur fyrir að styðja innrás Bandaríkjamanna í Írak en það gerðum við Íslendingar svo sem líka. Það sem nú vekur einna mesta athygli Japana á hinum silfurhærða fyrrum leiðtoga er að ofurhetjan Ultraman King, sem er þekkt japönsk teiknimyndapersóna, skartar rödd gamla ráðherrans. Einmitt, Koizumi styttir sem sagt dægur sín í ellinni með því að lesa inn á teiknimyndir og er víst nokkuð fær á því sviði að sögn þeirra sem til þekkja. Talsmaður Tsuburaya Productions, sem ber ábyrgð á teiknimyndunum um Ultraman King, segir að í huga stjórnenda þar á bæ hefði ekki mátt fá heppilegri rödd en þá sem berst úr barka forsætisráðherrans fyrrverandi og eru menn nú himinlifandi yfir væntanlegri sigurför hasarmyndarinnar „Mega Monster Battle Ultra Galaxy" þar sem Koizumi er sagður fara gjörsamlega á kostum.
Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Sjá meira