Boða stóreignaskatt og hækkun á áfengi 27. júní 2009 02:15 Áfengi og tóbak gæti hækkað verulega í verði á næstu misserum ef áform ríkisstjórnarinnar ná fram að ganga.
Fjármálaráðherra boðar 30 til 40 prósenta hækkun á áfengis- og tóbaksgjaldi á næstu mánuðum í nýrri skýrslu um jöfnuð í ríkisfjármálum sem gerð var opinber í gær. Áætlað er að slíkar hækkanir gætu skilað ríkinu fjórum milljörðum í auknar tekjur. Hægt væri að hækka gjöldin í áföngum út næsta ár. Skýrslan var lögð fyrir Alþingi í gær en ekki rædd. Í henni er farið yfir nauðsynlegar aðgerðir til að brúa fjárlagagatið - en þær skiptast í tekjuöflunarleiðir, aðallega skattahækkanir, og leiðir til niðurskurðar. Viðurkennt er í skýrslunni að „jafnvel þótt leitast verði við að hlífa félagslega og samfélagslega viðkvæmum sviðum og vinnuaflsfrekri starfsemi [náist] ekki mikill árangur án þess að stig félagslegrar þjónustu svo sem í tryggingamálum og heilbrigðismálum lækki umtalsvert, dregið verði úr menntunarframboði og starfsfólki á vegum ríkisins fækki.“ Meðal skattahækkana sem boðaðar eru í skýrslunni eru skattur á komufarþega og hótelsgistingu, sem kynnu að afla ríkissjóði um 700 milljóna á ári, frekari hækkun á bensín- og olíugjaldi og sérstakt kolefnisgjald sem lagt yrði á alla vöru og hráefnisnotkun sem veldur kolefnislosun, meðal annars álver. Kolefnisgjald er talið geta skilað allt að 7,5 milljörðum í ríkiskassann árlega. Tekið er fram í skýrslunni að slíkt gjald kynni hins vegar hugsanlega að hafa áhrif á þá sem hug hafa á að reka álverksmiðjur hér á landi. Einnig er tæpt á því að æskilegt gæti verið að hækka tekjuskatt frá og með næstu áramótum, en slík hækkun gæti aflað ríkinu 30 til 40 milljarða á ári. Þá er það nefnt sem möguleg leið að hækka lægra skattþrep virðisaukaskatts úr sjö prósentum í tólf, sem myndi auka tekjur ríkissjóðs um sjö milljarða, eða jafnvel í fjórtán prósent, sem myndi skila tíu milljörðum í auknar tekjur. Enn fremur er tekið fram að til álita komi að huga að breytingum á sköttum eins og eignaskatti og erfðafjárskatti. Í tilviki eignaskatta yrði eingöngu um að ræða skatt á mjög mikla eign, það er eins konar stóreignaskatt á tekjugefandi eignir. Eignaskattur var afnuminn árið 2006 og hafa hugmyndir um endurupptöku hans til þessa vakið hörð viðbrögð samtaka eldri borgara, sem telja slíkan skatt helst bitna á eldra fólki. „Rétt er að taka fram að engar mótaðar hugmyndir liggja fyrir um breytingar á þessum tveimur skattstofnum,“ segir í skýrslunni.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Sjá meira