Landtaka hindrar viðræður 28. ágúst 2009 06:00 Rýnt í Teikningar útrýmingarbúða Benjamín Netanjahú skoðar ásamt Ralph Georg Reuth, sagnfræðingi í Berlín, frumeintök af teikningum nasista að útrýmingarbúðunum í Auschwitz. Netanjahú fékk þessar teikningar afhentar í gær.fréttablaðið/ap
Forsætisráðherra Ísraels hefur í vikunni heimsótt bæði bresk og þýsk stjórnvöld ásamt því að hitta George Mitchell, erindreka Bandaríkjastjórnar gagnvart Mið-Austurlöndum. Jafnt Mitchell sem Gordon Brown, forsætisráðherra Breta, og Angela Merkel Þýskalandskanslari hafa lagt hart að Netanjahú að gera allt sem í hans valdi stendur til að hægt verði að hefja á ný friðar-viðræður við Palestínumenn. Til þess að svo megi verða þarf hins vegar að finnast lausn á deilum um landtöku Ísraela á hernumdu svæðunum, bæði á Vesturbakkanum og austurhluta Jerúsalem. „Við verðum að ná framförum í friðarferlinu,“ sagði Merkel á sameiginlegum blaðamannafundi með Netanjahú í Berlín í gær, „og stöðvun landnámsins er mjög mikil-væg.“ Á þessum blaðamannafundi lögðu þau bæði jafnframt áherslu á að stjórnvöld í Íran stöðvi kjarnorkuáætlanir sínar, ella megi þau eiga von á harðari refsiaðgerðum. Ísraelar hafa miklar áhyggjur af kjarnorkuáformum Írans. Orðrómur hefur verið um að Bandaríkjastjórn hafi lofað Netanjahú því að þrýsta harðar á Írana gegn því að Ísraelar stöðvi landtökuframkvæmdir. Netanjahú segir hins vegar ekkert hæft í þeim orðrómi. Bandaríkjastjórn hefur gefið Írönum frest fram í miðjan september, en um það leyti hefst einnig Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York. Daginn áður höfðu bæði Ísraelar og Palestínumenn gefið í skyn að hugsanlega myndu leiðtogar þeirra, þeir Netanjahú og Mahmoud Abbas, hittast á Allsherjarþinginu. Netanjahú virðist gera sér vonir um að hefja viðræður við Abbas þar, en Palestínumenn hafa til þessa sagt að viðræður geti ekki hafist fyrr en Ísraelar verði við kröfu Bandaríkjastjórnar um að stöðva allar nýframkvæmdir í landtökubyggðum. Heimsókn Netanjahús til Þýskalands varð einnig tilefni til að minna á helför gyðinga á tímum nasista. Honum voru meðal annars færð frumeintök af teikningum nasista að útrýmingarbúðunum í Auschwitz, sem fundust í Berlín á síðasta ári. Þessar teikningar verða til sýnis í Helfararsafninu Yad Vashim í Jerúsalem. „Þeir eru til sem neita því að helförin hafi átt sér stað,“ sagði Netanjahú við þetta tækifæri. „Þeir ættu að koma til Jerúsalem og skoða þessar teikningar, þessi plön um verksmiðju dauðans.“ gudsteinn@frettabladid.is
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira