Innlent

Ekki hægt að bólusetja fólk gegn svínaflensu

Frá Mexíkóborg.
Frá Mexíkóborg. Mynd/AP
Ekki er hægt að bólusetja sig til að koma í veg fyrir að fá svínaflensu. Þegar er þó byrjað að þróa bóluefni en það getur tekið vikur og jafnvel mánuði. Íslendingar hafa tryggt sér ákveðinn forgagn að því lyfi þegar það verður til.

Ef fólk veikist eru til veirulyf sem virka á flensuna eins líkt og lyfin Tamiflu og Relenxa. Hér á landi er til lyf fyrir þriðjung þjóðarinnar, sem er meira en flestar Evrópuþjóðir eru með.

Það er ekkert sem bendir til að hættulegt sé að borða svínakjöt eða svínaafurðir þar sem veiran hefur ekki greinst í svínum á hér á landi.

Ekki er mælt með því að almenningur gangi með grímur heldur aðeins heilbrigðisstarfsfólk sem umgengst fólk sem er veikt af flensunni. Ekki er sannað að grímurnar komi í veg fyrir smit.

Þúsundir manna deyja af flensu af hverju ári í Bandaríkjunum. Þar er aðallega um að ræða gamalt og veikt fólk. Það sem vekur ótta nú er að flestir þeirra sem hafa látist af flensunni í Mexíkó eru ungt heilsuhraust fólk eða frá þrítugsaldri og upp að fimmtugu.

Einkenni flensunnar eru hár hiti, hósti, höfuðverkur, vöðvaverkir og lungnabólga. Svínaflensan smitast á sama hátt og aðrar flensur með hósta, hnerra og snertingu.

Það sem fólk getur gert til að forðast flensuna er að gæta hreinlætis, þvo sér oft um hendurnar og forðast margmenni.


Tengdar fréttir

Talsvert af Íslendingum býr í Mexíkó

Haraldur Briem sóttvarnarlæknir segist ekki hafa spurnir af því að einhverjir Íslendingar hafi verið að koma frá Mexíkó undanfarna daga. Rösklega 100 manns hafa látíst af völdum fuglaflensu undanfarna daga og hefur Alþjóða heilbrigðisstofnunin varað við mögulegum heimsfaraldri.

Skólum lokað vegna svínaflensu í Mexíkó

Heilbrigðisyfirvöld í Mexíkó og Bandaríkjunum leita nú að nýjum tilfellum af skæðri inflúensu sem hefur greinst í löndunum tveimur og hefur dregið minnst 20 til bana í Mexíkó.Óttast er að rekja megi nærri 50 dauðsföll til viðbótar einnig til sjúkdómsins.

Svínaflensa veldur vá gegn almannaheilsu

Alþjóða heilbrigðismálastofnunin lýsti nú í kvöld yfir vá gegn almannaheilsu um allan heim vegna svínaflensu sem greinst hefur í Mexíkó og Bandaríkjunum.

Yfir 100 látnir úr svínaflensu í Mexíkó

Tala látinna úr svínaflensu í Mexíkó er komin upp í 103. Sóttvarnaryfirvöld hér á landi ákveða í dag hvernig brugðist verður við vá vegna flensunnar. Allir Íslendingar, sem nú eru staddir í Mexíkó, verða skoðaðir við heimkomuna en eftir því sem næst verður komist eru þeir allir við góða heilsu.

Sóttvarnarlæknir í viðbragðsstöðu vegna svínaflensu

Alþjóða heilbrigðismálastofnunin varaði í dag við mögulegum heimfaraldri svínaflensu. Sjúkdómurinn hefur dregið nærri sjötíu til dauða í Mexíkó síðan um miðjan mars. Sóttvarnarlæknir er í viðbragðsstöðu.

Sjötíu manns hafa látist vegna svínaflensu í Mexíkó

Sérfræðingar Alþjóða heilbrigðismálastofnunarinnar eru búnir undir að þurfa að einangra með hraði hluta Mexíkó og Bandaríkjanna þar sem ný tegund svínaflensu hefur greinst í fólki. Talið er að flensan hafi dregið nærri sjötíu manns til bana í Mexíkó.

Aukinn viðbúnaðar vegna svínaflensu - komin til Bretlands

Alþjóða heilbrigðisstofnunin, WHO, hefur aukið viðbúnað sinn vegna farsóttarhættu vegna svínaflensufaraldursins í Mexíkó. Viðbúnaðarstig hefur verið hækkað úr þriðja stigi í það fjórða en stigin eru alls sex. Faraldurinn hefur breiðst út og hefur nú fyrsta tilfellið verið greint í Bretlandi.

Möguleiki talinn á heimsfaraldri

Heilbrigðismál „Við erum að afla upplýsinga og fylgjast með, en eins og málum er háttað er ekki búið að breyta áhættumatinu. Það eru engin tilmæli um ferðatakmarkanir og við erum bara á sama stigi og þegar varað var við fugla­flensunni,“ segir Haraldur Briem, sóttvarnalæknir hjá Landlæknisembættinu, um hugsanlegan svínaflensufaraldur.

Fleiri greinast með svínaflensu

Alþjóða heilbrigðismálastofnunin lýsti í gærkvöldi yfir vá gegn almannaheilsu um allan heim vegn svínaflensu sem greinst hefur í Mexíkó og Bandaríkjunum.

Hvað er þessi svínaflensa?

Svínaflensa er smitandi öndunarsjúkdómur sem herjar yfirleitt á svín og orsakast af týpu af inflúensuveiru. Reglulega gengur um faraldur í svínum. Margar ólíkar gerðir eru til af sjúkdómnum og sú gerð sem núna gengur á milli er svokölluð H1N1 týpan.

Tveir Íslendingar rannsakaðir vegna gruns um svínaflensu

Tveir Íslendingar hafa verið rannsakaðir vegna gruns um að þeir hafi smitast af svínaflensu. Einstaklingarnir eru báðir nýkomnir frá Bandaríkjunum. Þetta kom fram á blaðamannafundi með Almannavarnadeild Ríkislögreglustjóra sem nú stendur yfir. Tekið var fram að ekki þykir líklegt að mennirnir séu smitaðir af svínaflensunni og er þeim ekki haldið í einangrun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×