Engin endurskoðun án mótmæla Ingimar Karl Helgason skrifar 22. október 2009 12:43
Almenningur þarf að sýna það í verki, með mótmælum, vilji hann að samstarfinu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn verði breytt. Viðræður ríkisstjórnarinnar einnar um endurskoðun samstarfsins dugi ekki til; sjóðurinn taki hins vegar mark á almenningi. Þetta segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri-grænna, sem telur að Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hafi einhliða sagt upp samstarfinu við Ísland. Lilja telur að tafir á lánafyrirgreiðslu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, sem nú virðist vera að ganga í gegn, sé ekki hægt að túlka öðruvísi en sem einhliða uppsögn sjóðsins á samkomulaginu við Íslensk stjórnvöld. Lilja telur að sjóðurinn hafi ekkert lært af fyrri mistökum; eins og að eyða gjaldeyrisvarasjóði í vonlausa baráttu við að halda gengi stöðugu; en bannað sé að fara aðrar leiðir eins og til að mynda að skattleggja útstreymi fjármagns. Hún telur að efnahagsáætlunin sem gerð var fyrir um ári, hafi gert ráð fyrir mun minni skuldsetningu en komið hafi í ljós. Því vill hún að efnahagsáætlun sjóðsins og Íslands verði endurskoðuð. Þetta hafi komið til tals hjá stjórnarliðum; og reikna megi með því að óskað verði eftir endurskoðun áætlunarinnar, þegar mál okkar hefur verið tekið fyrir hjá sjóðnum. „En ég er ekki svo viss um að efnahagsáætluninni verði breytt mikið nema að bæði stjórnvöld þrýsti á það og svo fólkið í landinu." Lilja segir að AGS líti þannig á veru sína hér að fólkið hafi kallað eftir honum. Reynsla annarra þjóða sýni að sjóðurinn sé viðkvæmur fyrir gagnrýni almennings. „Í formi mótmæla og annarra sambærilegra aðgerða." Ekki sé víst að þrýstingur ríkisins einn og sér dugi til þess að knýja fram breytta efnahagsstefnu.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Heiða greinir frá morðhótunum Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira