Davíð vitnaði í vitlausa skýrslu - önnur gögn finnast ekki 5. júlí 2009 15:00 Davíð Oddsson fyrrum seðlabankastjóri vitnaði í vitlausa skýrslu.
Í viðtali sem Agnes Bragadóttir tekur við Davíð Oddsson, fyrrum seðlabankastjóra, segist hann furða sig á því að stjórnvöld hafi ekki opinberað mikilvæga skýrslu sem hafi verið unnin af evrópskri nefnd á vegum OECD undir stjórn Jean Claude Trichet, núverandi seðlabankastjóra Seðlabanka Evrópu. Skýrslan sem Davíð vitnar í er hvorki leynileg né yfirhöfuð unninn af nefnd á vegum OECD. Hann hefur hinsvegar rétt fyrir sér varðandi aðkomu Jean Claude Trichet að skýrslunni. Það var franski seðlabankinn sem vann hana árið 2000 og Trichet gegndi embætti seðlabankastjóra þá. Í skýrslunni, sem Vísir hefur undir höndum, má finna setninguna á blaðsíðu 179 en þaðan nær hún yfir á blaðsíðu 180. Davíð sagði í viðtalinu að í henni kæmi fram að innistæðutryggingin ætti ekki við ef um algjört bankahrun væri að ræða. Á ensku hljóðar setningin orðrétt: „It is accepted that deposit guarantee schemes are neither meant nor able to deal with systemic banking crises, which fall within the remit of other parts of the "safety net", e.g. supervisors, central bank, government." Lausleg þýðing setningarinnar hljóðar þá svo: Það skal viðurkennt að innistæðutryggingakerfið er hvorki ætluð né möguleg til þess að takast á við kerfishrun banka, sem falla fyrir utan annarra þátta „öryggisnetsins", það er, eftirlitsaðilar, seðlabanki og stjórnvöld. Þegar haft var samband við aðstoðarmann utanríkisráðherra, Kristján Guy Burgess, sagði hann: „Við höfum ekki fundið neina skýrslu sem svarar til þeirra sem Davíð lýsir í þessu viðtali. Hinsvegar er til skýrsla frá franska seðlabankanum frá þeim tíma sem Trichet var seðlabankastjóri þar sem hægt er að finna hálfa málsgrein sem stemmir við það sem Davíð segir. Þá vantar hinsvegar endann á setningunni og í heild fjallar málsgreinin um það að verði bankahrun þá geti ekki tryggingasjóður einn og sér staðið undir skuldbindingum heldur þurfi ríkisstjórnin og seðlabanki að koma þar til hjálpar." Davíð vitnar því í hálfa setninguna að hans sögn. Þegar Kristján var spurður um önnur gögn sem Davíð vitnar til í viðtalinu segist hann engin slík hafa fundist þar sem Davíð vitnaði óljóst til þeirra. Hann bendir þó á heimasíðuna island.is þar sem finna megi tæplega 70 gögn um Icesave sem voru nýlega gerð opinber. Leynilega skýrslu franska seðlabankans má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Innlent Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Innlent Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Fleiri fréttir „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Sjá meira