Stöðugleikasáttmáli gæti verið úr sögunni 26. október 2009 06:00
Margt þarf að koma til svo að friður haldist á vinnumarkaði. Á þriðjudag tekur stjórn Samtaka atvinnulífsins ákvörðun um hvort kjarasamningar verða framlengdir. Lítil bjartsýni ríkti meðal forsvarsmanna launþega og atvinnurekenda eftir að fundi þeirra með stjórnvöldum lauk í gærdag. Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra sagði í gærkvöldi að verið væri að vinna úr fundinum og þoka málum áfram. Hann var frekar bjartsýnn en ekki. „Ég held að allir vilji halda áfram að reyna að koma þessu áfram en auðvitað er það svo í þeirra höndum að lokum hver niðurstaðan verður um kjarasamningana." Spurður hvort til greina komi allsherjarstefnubreyting stjórnarinnar, til að friða vinnumarkaðinn, segist Steingrímur ekki telja að málið snúist um það. „Ég held að þetta byggist nú á því hvort menn ná saman á þessum tímapunkti og glíma við þessar aðstæður. Aðalatriðið er að halda þessu áfram í góðri trú og góðum anda," segir hann. Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, segir að allt sé í óvissu. Allt of langt sé gengið í skattahækkunum. Heimili og fyrirtæki beri þær ekki. Tekjuforsendur fjárlaga gangi því ekki upp. „Það hefur verið upplýst að það eru ekki áform uppi um að láta persónuafslátt hækka í samræmi við bæði lög og kjarasamninga. Það á að auka skattbyrði á þá tekjulægstu og það er alveg í andstöðu við markmið þessa sáttmála," segir hann. Persónuafsláttur þurfi að hækka um 6.600 krónur til að halda í við verðbólgu og annað. Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að nú sé beðið eftir útspili ríkisstjórnarinnar. Hann vill, eins og Gylfi, að skattaáform verði endurskoðuð og þeir eru sammála um að fara þurfi í auknar framkvæmdir. „Orkuskattar þurfa að fara út, gjaldeyrishöftin, vextir og sjávarútvegsmál. Við erum ekkert að gefast upp en þar er margt sem þarf að klárast til að við getum haldið þessu áfram," segir hann. - kóþ
Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Fleiri fréttir Réttarhöld í Reykholtsmáli halda áfram og djúpfölsunum fjölgar Ráðuneytið segir kostnaðinn átta til þrettán milljarða Andstæðingar segja að Áfram Ísland hafi úr allt að 300 milljónum að spila Hafi ekki hótað með keðjusög og að henda þolanda útbyrðis við Grænlandsstrendur Lag Gunnars og Davíðs hljómar þegar hringt er í borgina Óvissustigi í Öskju aflýst Dómsmálaráðherra valdi Ásgerði í Hæstarétt Grunuðum þjófum vísað úr landi og meinuð endurkoma í 7 ár Áfram Ísland vísar fullyrðingum Kristrúnar á bug Heiðrún Lind á toppnum hjá hagsmunasamtökum Kvikuhlaup frá Svartsengi enn líklegasta sviðsmyndin Tíu af tuttugu efstu embættismönnunum hjá orkufyrirtæki Hafi aldrei farið í Reykholt Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Óttast að þeir tekjulægstu dragi úr kaupum á mat Verðhækkanir hjá Reykjavíkurborg og Kristrún á fundaferðalagi Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Hitnar í kolunum: Já og nei í Pallborði Stolinn bíll fannst úti í á Vilja bæta umferðarflæði með hraðari snjallljósavæðingu Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Erlendir ríkisborgarar flestir í Mýrdalshrepp og fæstir í Kjósarhrepp Aðalmeðferðin heldur áfram í Reykholtsmálinu Meirihluti telur hitamet og gróðurelda vegna loftslagsbreytinga Bandero dregið úr höfn og flutt til Akraness Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Gott að Trump hafi opnað á umræðuna Fólk hélt í sér á meðan sólmyrkvinn gekk yfir Sjá meira