Ciesielski segir sig úr Framsókn 2. mars 2009 03:00 Segir ekki hægt að breyta Framsóknarflokknum og stefnir nú á sér-framboð. „
Nei, þeir vilja ekki setja mig á lista. Þannig að ég fór í Framsóknarflokkinn til að segja mig úr honum aftur. Þeir skilja ekki út á hvað þetta gengur,“ segir Sævar Ciesielski. Fréttablaðið greindi frá því fyrir nokkru að Sævar stefndi ótrauður á 1. sæti á lista framsóknarmanna á Suðurlandi. Enda á Sævar rætur að rekja þangað. En eitthvert bix er með lögheimili og sá framkvæmdastjórn flokksins öll tormerki á að Sævar gæti tekið sæti á lista flokksins þar. En bauð honum þess í stað sæti aftarlega á lista í Reykjavík. Sævar hins vegar telur nú réttu stundina upp runna til að hafa áhrif og breyta samfélaginu. Hann segist eiga vísan stuðning meðal námsmanna í Háskólanum enda lætur hann sig málefni þeirra nokkru varða. Og Sævar er nýlega kominn frá Eyjum þar sem honum var gríðarlega vel tekið þrátt fyrir að Eyjar séu íhaldsbæli að sögn Sævars. „Elliði Vignisson bæjarstjóri er afbragðsmaður. Ég átti fund með bæjarstjórninni sem var útvarpað. Og við ræddum meðal annars aflaheimildir og loðnu sem skiptir plássið gríðarlega miklu máli.“ Virðist nokkuð brátt um kandídata í kosningar á vegum Framsóknarflokksins. Áður hafði Þráinn Bertelsson gefið á sér kost en dró sig til baka. Sævar er þó ekki af baki dottinn. Hann segist hafa stofnað árið 1995 félag: Samtök um réttlæti. Og undirbýr nú sérframboð undir fána þeirra samtaka. „Allt klárt og stimplað. Það verður að standa vörð um þá sem minnst mega sín í samfélaginu.“- jbg
Mest lesið Hvað er það versta sem þú hefur gert? Gagnrýni Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Lífið „Þetta pólýsamband er orðið að mormónahjónabandi“ Bíó og sjónvarp Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Lífið Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Lífið Cruise tekur á loft í þriðja sinn Bíó og sjónvarp Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Lífið Útför Björgvins opin almenningi Lífið Hlustun á Bó snaraukist Tónlist Krummi kveður pabba sinn Lífið Fleiri fréttir Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Vilja fá fólk út í sumar með nýjum leik Með líkamsræktaraðstöðu heima í stofu og var að klára bílskúrinn Þau syngja Þjóðhátíðarlagið í ár Útför Björgvins opin almenningi Báru fram kokteila í vatnsbyssum, páskaeggjum og kransakökum Einvígi aldarinnar endurtekið Svona er dagskrá Barnamenningarhátíðar í ár „Það er verið að kalla hana n-orðinu“ Fjölbreyttur hópur í dómnefnd Ungfrúar Íslands Fengið sinn skerf af áföllum í lífinu Krummi kveður pabba sinn Leikaraliðið í Leitinni að Gollri fullskipað: Jamie Dornan verður Aragorn Oddvitaáskorunin: Myndi vilja vera „sérfræðingur að sunnan“ Rákust á Mamdani yfir morgunbollanum Þetta er áratugurinn sem samtíminn saknar mest Hvað veistu um... Vetrarólympíuleika? Mætti í þáttinn til að vinna sér inn fyrir þurrkara Frumfluttu lag Barnamenningarhátíðarinnar fyrir káta krakka „Ég hef grátið því að ég var svo skotin í þér“ Uppeldið hjá ömmu og afa áhrifamest „Þetta lið á Akureyri vildi ekki gefa mér gullið“ Gurrý um svuntuaðgerðina: „Jesús hvað þetta er búið að vera erfitt“ Clavicular fluttur á spítala vegna ætlaðrar ofskömmtunar Oddvitar landsins takast á við Oddvitaáskorunina Óvænt ökuferð að ógleymanlegu augnabliki Umdeildum K-Pop stjörnum skipt út í Hörpu Opnar sig um andlát kærastans eftir skotárás í New York „Svo kom í ljós að þetta var alls ekki amma mín“ „Hún reyndi aldrei að koma í stað mömmu“ Sjá meira