Kínverskir tölvuþrjótar sækja að eldri konum Atli Steinn Guðmundsson skrifar 1. september 2009 07:56 Myndin tengist ekki þessari frétt.
Óprúttnum aðilum, sem stunda hvers kyns tölvuglæpi, hefur vaxið mjög fiskur um hrygg í Kína og vinna skipulögð gengi nú að því að brjótast inn í tölvur fólks og freista þess að nálgast þar viðkvæmar bankaupplýsingar auk hvers kyns persónuupplýsinga sem hægt er að nýta til að komast yfir skjót- og illa fenginn gróða. Eldra fólk verður ekki síst fyrir barðinu á þrjótunum og er nú svo komið að 70 prósent fórnarlambanna eru eldri borgarar og 70 prósent þeirra eru konur. Algeng aðferðafræði er meðal annars að senda fólki tölvupóst þar sem sendandinn læst vera á vegum bankastofnunar eða greiðslukortafyrirtækis, jafnvel lögreglunnar. Viðtakandanum er svo gefið upp símanúmer sem hann er beðinn að hringja í og gefa þar ákveðnar upplýsingar um bankareikninga, leyninúmer greiðslukorta og annað í þeim dúr. Huang Zuyue, deildarstjóri rannsóknardeildar ráðuneytis almannaöryggis segir þjófana að jafnaði ráða yfir þróuðum tölvubúnaði auk þess sem þeir séu gjarnan tunguliprir í símanum eða hafi slíka menn á sínum snærum. Undanfarið hefur kínversk lögregla handtekið um 1.400 manns sem grunaðir eru um tölvuglæpi.
Mest lesið Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent „Ég er ógeðslega reiður“ Innlent Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Erlent Aðstandendum sýnd mynd af líkinu fyrir slysni Innlent Íslensk heimili eigi að geta þolað sársaukann Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Umræðan verið erfið fyrir eiginkonuna Innlent Starfsmaður Landsnets fluttur erlendis á sjúkrahús Innlent Konan sem lögreglan lýsti eftir er fundin Innlent Fleiri fréttir Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Vilja formlega afsökun frá Selenskí Trump vill fleiri bensínháka á göturnar Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Rannsaka möguleg tengsl Íran við meinta hryðjuverkamenn Sjá meira