Hleypur milli Reykjavíkur og Akureyrar 5. júlí 2009 20:08 Skokkarar. Myndin tengist ekki fréttinni beint.
Gunnlaugur Júlíusson langhlaupari lagði í morgun upp í hlaup milli Reykjavíkur og Akureyrar og áformar að vera sex daga á leiðinni. Tilgangurinn er að safna fé til styrktar Grensásdeild Landspítalans og segir hann að hugmyndin hafi vaknað eftir að hann sá sjónvarpsviðtal við Eddu Heiðrúnu Backman leikkonu. Reikningsnúmer söfnunarinnar er 130-26-9981. Reikningurinn er í umsjón UMFÍ, og á kennitölu 660269-5929. Gunnlaugur lagði af stað frá Útvarpshúsinu í morgun. Með honum hljóp fyrsta áfangann Sigurður Guðmundsson frá Ungmennafélagi Íslands en förinni er heitið á landsmótið á Akureyri þar sem Gunnlaugur hyggst ljúka hlaupinu á föstudagskvöld. Fyrsti áningastaður var Grensásdeildin en þar tók á móti köppunum Kolbrún Halldórsdóttir, fyrrverandi alþingismaður, hægri hönd Eddu Heiðrúnar, sem ætlaði að taka á móti Gunnlaugi í Borgarnesi í kvöld. Gunnlaugur verður, eftir því sem best er vitað, fyrstur til að hlaupa þjóðveginn milli Reykjavíkur og Akureyrar. Áður hefur þó verið hlaupið á milli staðanna því sumarið 1986 hlupu fimm sundkappar frá Akureyri til Reykjavíkur um Sprengisand. Þeir voru tíu daga á leiðinni og hlupu til að safna fé fyrir ólympíulandsliðið í sundi. Þeir hófu hlaupið á Ráðhústorginu á Akureyri og luku því á Lækjartorgi í Reykjavík.
Mest lesið Eldgos hafið Innlent Að ráðast, eða ráðast ekki, á Moskvu Erlent Leggur til að frídögum verði fækkað um tvo Erlent Fallegt og ekkert smágos Innlent Hyggst ekki segja af sér þrátt fyrir reiði vegna Epstein-listans Erlent Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Innlent Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Innlent Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Innlent Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Innlent Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni Innlent Fleiri fréttir Fyrst vöruskemman, nú göngustígar: „Mórallinn er bara ömurlegur“ Skoða hvort gosið breyti heimsókn von der Leyen Dómstóll ESB staðfestir niðurstöðu varðandi vörumerkið Iceland Fallegt og ekkert smágos Eldgos hafið Samhjálp „hálfnuð í mark“ og endurskipuleggur Kaffistofuna Göngumaður slapp ómeiddur úr sjálfheldu við Hestskarð Ólöf Tara yrði hissa en þakklát að gangan sé tileinkuð henni „Ekki bara fávísir hitabeltisbúar sem eru að detta á hausinn“ Yfirleitt Íslendingar sem aki utan vega Skipstjóri handtekinn talinn vera undir áhrifum „Ég var örugglega getinn í Land Rover“ „Valda fleiri húðkrabbameinum en sígarettur lungnakrabbameini“ Göngumaður í sjálfheldu við Hestskarð Ákall um ljósabekkjabann og gengið fyrir Ólöfu Töru Enn rís land í Svartsengi Engu mátti muna á að alvarlegur árekstur yrði á þjóðveginum Hleypti líklega óvart úr Kominn úr lífshættu eftir stunguárás við Mjóddina Gísli Jóns í tveimur útköllum frá miðnætti „Það gæti tekið bara fimmtán mínútur að kála þeim“ Maðurinn er fundinn Ekki sekur um að hafa valdið dauða manns í Kiðjabergi Fagnar áherslum ríkisstjórnarinnar í sjávarútvegi Ræðukóngurinn talaði í rúman sólarhring Miklar bikblæðingar á Norðurlandi Ræðukóngur Alþingis tekinn tali og varað við bikblæðingum á þjóðvegunum Þriggja ára barn ráfaði af leikskólanum og í Bónus Varnarviðbragð húðarinnar að verða brún í sól „Það þarf enginn að vera með vopn nema sérsveitin“ Sjá meira