Víðtækt samkomulag á vinnumarkaði Heimir Már Pétursson skrifar 25. júní 2009 18:51
Stöðugleikasáttmáli aðila vinnumarkaðrins og ríkisstjórnarinnar nær til 150 þúsund manna á launamarkaði og er ætlað að vera grunnur að endurreisn íslensks atvinnulífs. Laun þeirra sem eru á taxtalaunum hækka um mánaðamótin en aðrir fá ekki launahækkun fyrr en í nóvember. Skattar verða hækkaðir um tugi milljarða og enn hærri fjárhæðir skornar niður. Samkomulag það sem undirritað var í Þjóðmenningarhúsinu í dag er eitt það víðtækasta sem gert hefur verið á Íslandi og nær til stjórnvalda, Alþýðusambandins, Bandalags háskólamanna, BSRB, Kennarasambands Íslands, Samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja, Samtaka atvinnulífsins og sambands íslenskra sveitarfélaga. Sameiginlega stefna þessir aðilar að samstilltum aðgerðum sem miða að því að endurreisa íslenskt efnahagslíf. Ein meginforsenda stöðugleikasáttarinnar er að tryggja frið á vinnumarkaði og því var byrjað á að undirrita samkomulag um framlengingu kjarasamninga á almennum markaði og að samningar opinberra starfsmanna taki mið af þeim samningum. Laun fólks á almennum vinnumarkaði sem eingöngu frá greitt samkvæmt töxtum, hækka um 6.750 krónur og hjá iðnaðarmönnum og öðrum sambærilegum stéttum um 8.750 krónur hinn 1. júlí og svo aftur um sömu upphæð hinn 1. nóvember. Aðrir fá ekki launahækkanir fyrr en í nóvember og þá upp á 3,5 prósent. Vilhjálmur Egilsson framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins sagði þetta ekki sáttmála um stöðnun heldur framfarir. Hann þakkaði Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra fyrir ódrepandi áhuga hennar á málinu. Undir þetta tók Gylfi Arnbjörnsson forseti Alþýðusambandsins og sagði Jóhönnu og Steingrím J. Sigfússon fjármálaráðherra eiga heiður skilinn fyrir aðgöngu þeirra að sáttmálanum. Mikilvægt væri að allir aðilar í samfélaginu snéru nú bökum saman við endurreisn efnahagslífsins. En minnstu munaði að uuúr slitnaði í gær, vegna ólíkra skoðana samtaka opinberra starfsmanna og aðila vinnumarkaðarins á því hversu hátt hlutfall í aðgerðum ríkisstjórnarinnar til að stoppa í fjárlagagatið skuli vera í formi skattahækkana. Á næstu þremur árum er stefnt að því að auka tekjur og eða skera niður upp á 128 milljarða króna, þar af verða skattar hækkaðir um 58 milljarða og niðurskurður og sparnaður á að ná 70 milljörðum. Stærsti liðurinn í útgjöldum ríkisins er launakostnaður. Forsætisráðherra sagði að varla yrði hjá því komist að einhverjar uppsagnir ættu sér stað hjá hinu opinbera, en í sáttmálanum væru þó ákveðnar varnir gagnvart velferðarkerfinu séu innbyggðar í sáttmálann.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Sjá meira