Innlent

Ábendingar um kynferðisofbeldi beint til ríkislögreglustjóra

Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla
Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla Mynd/ Valli
Barnaheill og ríkislögreglustjóri hafa gert með sér samning um að framvegis fari ábendingar um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum á netinu beint til ríkislögreglustjóra. Barnaheill hefur starfrækt ábendingalínuna frá 2001 og er það hluti af verkefninu „Stöðvum barnaklám á Netinu" sem styrkt hefur verið af ESB.

Nú eru Barnaheill og ríkislögreglustjóri að undirrita samning um að slíkar ábendingar fari framvegis beint til ríkislögreglustjóra.

Frá október 2001 og til loka ársins 2008 bárust 4.067 ábendingar og þar af voru 1.376, eða 34%, um efni þar sem börn eru sýnd á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Frá því að ábendingalínan hóf starfsemi sína hafa starfsmenn Barnaheilla tekið við ábendingunum, metið efnið, fundið út hvar það er vistað og sent upplýsingarnar áfram til samstarfsaðila erlendis eða til ríklögreglustjóra.

„Þar sem um er að ræða glæpi gegn börnum og ólöglegt efni sem oft krefst lögreglurannsóknar finnst okkur hjá Barnaheillum eðlilegra að skoðun ábendinga sé í höndum embættis ríkislögreglustjóra. Því hafa Barnaheill og ríkislögreglustjóri gert með sér samning um að ábendingar sem koma til okkar fari framvegis beint til ríkislögreglustjóra en við munum áfram vera með ábendingahnapp á vefsíðu okkar," segir Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla.

Barnaheill og SAFT, verkefni Heimilis og skóla, mun áfram sinna fræðslu og upplýsa almenning, lögreglu, löggjafann, netþjónustuaðila, barnaverndaryfirvöld og stjórnavöld um mikilvægi þess að vernda börn gegn kynferðislegu ofbeldi á Netinu. Samvinna allra þessara aðila er mikilvæg til að stemma stigu við slíku efni og er liður í baráttunni gegn ofbeldi á börnum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×