Ábendingar um kynferðisofbeldi beint til ríkislögreglustjóra 25. júní 2009 11:25 Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla Mynd/ Valli
Barnaheill og ríkislögreglustjóri hafa gert með sér samning um að framvegis fari ábendingar um kynferðislegt ofbeldi gegn börnum á netinu beint til ríkislögreglustjóra. Barnaheill hefur starfrækt ábendingalínuna frá 2001 og er það hluti af verkefninu „Stöðvum barnaklám á Netinu" sem styrkt hefur verið af ESB. Nú eru Barnaheill og ríkislögreglustjóri að undirrita samning um að slíkar ábendingar fari framvegis beint til ríkislögreglustjóra. Frá október 2001 og til loka ársins 2008 bárust 4.067 ábendingar og þar af voru 1.376, eða 34%, um efni þar sem börn eru sýnd á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Frá því að ábendingalínan hóf starfsemi sína hafa starfsmenn Barnaheilla tekið við ábendingunum, metið efnið, fundið út hvar það er vistað og sent upplýsingarnar áfram til samstarfsaðila erlendis eða til ríklögreglustjóra. „Þar sem um er að ræða glæpi gegn börnum og ólöglegt efni sem oft krefst lögreglurannsóknar finnst okkur hjá Barnaheillum eðlilegra að skoðun ábendinga sé í höndum embættis ríkislögreglustjóra. Því hafa Barnaheill og ríkislögreglustjóri gert með sér samning um að ábendingar sem koma til okkar fari framvegis beint til ríkislögreglustjóra en við munum áfram vera með ábendingahnapp á vefsíðu okkar," segir Petrína Ásgeirsdóttir, framkvæmdastjóri Barnaheilla. Barnaheill og SAFT, verkefni Heimilis og skóla, mun áfram sinna fræðslu og upplýsa almenning, lögreglu, löggjafann, netþjónustuaðila, barnaverndaryfirvöld og stjórnavöld um mikilvægi þess að vernda börn gegn kynferðislegu ofbeldi á Netinu. Samvinna allra þessara aðila er mikilvæg til að stemma stigu við slíku efni og er liður í baráttunni gegn ofbeldi á börnum.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Sjá meira